148. löggjafarþing — 28. fundur,  22. feb. 2018.

bann við kjarnorkuvopnum.

193. mál
[16:36]
Horfa

Flm. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Smára McCarthy fyrir þetta góða andsvar og fyrir að velta upp mikilvægum þáttum sem við þurfum að hafa í huga og skipta máli.

Mig langar að byrja á því að taka undir það að það var auðvitað alveg með ólíkindum að Ísland skyldi ekki taka þátt í samningaviðræðunum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna þegar verið var að ræða það hvernig tillögutexti sáttmálans skyldi líta út. Það er í raun þyngra en tárum taki að NATO-þjóðirnar almennt skyldu sniðganga þær umræður, því að auðvitað skiptir þeirra rödd máli við borðið. Það eru á endanum þær sem við þurfum að fá að borðinu og fá þær til þess að breyta um stefnu.

Hvað það varðar að við erum aðilar að NATO og hvort það geti flækt málin væri örugglega auðveldara að gerast aðilar að þessum sáttmála ef við værum ekki aðilar að NATO. Ég held að það sé ekkert hægt að líta fram hjá því. En forsvarsmenn ICAN-samtakanna hafa lagt á það mikla áherslu að NATO-þjóðirnar eigi einmitt að geta komið að borðinu og tekið þátt og þeirra rödd sé mikilvæg. Það er alla vega látið að því liggja í orði kveðnu að allar aðildarþjóðir NATO hafi rödd við borðið. Ísland á auðvitað að nota sína rödd við það borð meðan við erum aðilar að samtökunum og beita sér fyrir því að NATO breyti (Forseti hringir.) um stefnu í kjarnorkuvopnamálum og að ríkin gerist aðilar að þessum sáttmála.