bann við kjarnorkuvopnum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þetta er mjög fróðleg og upplýsandi umræða. Á mörgum sviðum tekur hún á svo miklum grunnmálum sem við höfum allt of sjaldan færi á að ræða um í þessum ræðustól. Ég er ekki beinlínis með andsvar við því sem hv. þingmaður sagði.
Aðild okkar að NATO hefur verið deiluefni á meðal íslensku þjóðarinnar síðan við gengum í NATO — nú er ég að reyna að reikna í huganum, eru þetta ekki að verða 70 ár? Aðild okkar hefur aldrei verið borin beint undir þjóðina. Ég veit að hv. þingmanni er mjög annt um lýðræðið. Mig langar að spyrja hann hvort hann sé sammála því að a.m.k. ætti að bera veru okkar í NATO undir þjóðaratkvæði.
Það eru mismunandi skoðanir á meðal friðarsinna um hvort lönd í NATO eigi að ganga úr NATO eða að reyna að hafa áhrif á stefnu NATO til breytingar.
Það eru kostir og gallar á báðum sviðum. Ég skil sjónarmið beggja. En að einhverju leyti finnst mér samt að ekki sé minni naívismi í þeirri hugsun að hægt sé að breyta stefnu NATO en þeirri að vona að hér verði bara friður.
En, hv. þingmaður, hér er verið að tala um kjarnorkuvopn. NATO er með kjarnorkuvopnastefnu. Við erum aðilar að bandalagi sem er með kjarnorkuvopnastefnu.
Í sjálfu sér er ég bara að velta þessu upp … Nú er hugsuninni algjörlega stolið úr hausnum á mér. Ég ætla ekki að tala út í loftið (Forseti hringir.) á meðan ég finn hana aftur.