samgönguáætlun.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og veit svo sem ekki hvort hann sé að vísa til þess sem hér stendur þegar hann talar um kamelljón. Ég skipti hvorki oft um lit né sérstaklega mikið um skap. Hækka jafnvel ekki röddina nema einstaka sinnum.
Ég er sammála þingmanninum um að það sé ekki endilega magn sem skiptir máli þegar lögð eru fram frumvörp eða þingsályktunartillögur heldur gæði og við ættum að vanda okkur. Ég hef reyndar lengi verið þeirrar skoðunar, löngu áður en ég kom inn á þing, að það væri kannski mikilvægara fyrir þingið að afgreiða færri mál og að við þyrftum ekki að lagfæra þau eins oft og raun ber vitni, fjöldinn ætti ekki að vera markmið í sjálfu sér.
Hins vegar leggjum við auðvitað fram þingmálaskrá, við gerðum það samviskusamlega, ný ríkisstjórn. Síðan höfum við verið að fara yfir það hvað er gerlegt og hvað er ekki gerlegt að leggja fram á þessum stutta tíma. Við höfum auðvitað ekki haft langan undirbúning, ráðherrarnir í ráðuneytunum. Sumt lá fyrir og sumt þurfti að laga og annað þurfti kannski að setja aftur í undirbúning frá upphafi eins og gengur.
Varðandi samgönguáætlunina er hún einmitt eitt þeirra plagga. Nýtt samgönguráð hóf vinnu sína í janúar og þótt ég hefði gjarnan viljað leggja fram samgönguáætlun núna í vor, fyrir sveitarstjórnarkosningar, munum við ekki ná því. Þess vegna verða nýjar samgönguáætlanir, annars vegar til fimm ára væntanlega og hins vegar 15 ára, lagðar fram á þinginu strax í haust og gefa okkur þar af leiðandi þrjá mánuði auka til að vinna þær í sumar. Ein af ástæðum þess er auðvitað sú að það er ekki boðlegt fyrir þingið að fá þær í hendur og ætlast til að þær verði afgreiddar á örfáum dögum í byrjun júní. Þetta er plagg sem allir hafa skoðun á.
Ég tel líka mikilvægt að það sé samræmi á milli fjármálaáætlunar og samgönguáætlunar. Fjármálaáætlunin kemur svo sannarlega fram í þinginu (Forseti hringir.) núna fyrir páska og þar verða línur lagðar um fjármálaramma hvers málefnasviðs.