148. löggjafarþing — 29. fundur,  26. feb. 2018.

samgönguáætlun.

[15:10]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Það er reyndar rétt að geta þess að samgönguáætlun sem er í gildi gildir út árið 2018 þannig að það er samgönguáætlun í gildi. (Gripið fram í.) Í fjárlögum þessa árs jukum við fjárframlögin til samgöngumála um rúma 2 milljarða, 2,2 ef ég man rétt. Það var gert til þess að fara í nauðsynlegar umbætur sem hægt var að mati Vegagerðarinnar að fara í á þessu ári til að hefja þá vegferð sem ríkisstjórnin vill svo sannarlega fara í og sem veruleg er þörf á í samfélaginu, þ.e. að hraða uppbyggingu í samgöngumálum. Bæði hefur aukningin á umferðinni orðið gríðarleg og þar af leiðandi viðhaldsþörfin á vegum og svo auðvitað nýframkvæmdir.

Varðandi byggðaáætlunina var hún lengra komin. Ég mun væntanlega geta lagt hana fram fyrir lok tilskilins frests, eins og ég fór yfir með umhverfis- og samgöngunefnd í síðustu viku. Hún ætti að geta komið hér fram og fengið nægilega umfjöllun eftir atvikum, eins og hv. þingmaður bendir á.