sjúkrabifreið á Ólafsfirði.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir, en ég kem mér bara beint að efninu: Þetta mat er alrangt. Samkvæmt öllum öryggisstöðlum þar sem eru göng eiga að vera sjúkrabílar og meira að segja slökkvilið og öll virk þjónusta beggja vegna ganga. Til dæmis Siglufjarðar- og Héðinsfjarðargöngin, þar sem hæstv. heilbrigðisráðherra vísar í þau, þá kemur líka upp sú staða að þar á milli er teppt.
Nú er staðan sú að það eru tveir sjúkrabílar staddir á Siglufirði í stað þess að hafa annan á Ólafsfirði og hinn á Siglufirði. Ég spyr: Er verið að greiða fyrir báða þessa sjúkrabíla? Kostnaðurinn sem um ræðir er að meðaltali um 7 millj. kr. á ári. Þess virði eru Ólafsfirðingar. Þess virði er að hafa öryggi fyrir borgara þessa lands, að þeir geti hringt á sjúkrabíl og fengið þjónustu einn, tveir og þrír því að það vill svo einkennilega til að þeir geta líka fengið hjartaáfall þar sem mínútur skipta máli. Þetta er dauðans alvara. Það er hæstv. ráðherra sem algerlega ræður þessu og þessi fulltrúi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands heyrir beint undir ráðherra. Eins og ég sagði í grein minni í morgun: Hjálpaðu þeim, hæstv. ráðherra, þinn er mátturinn. (Gripið fram í.)