148. löggjafarþing — 29. fundur,  26. feb. 2018.

breikkun Vesturlandsvegar.

[15:26]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Í síðustu viku var haldinn íbúafundur á Kjalarnesi þar sem íbúar vöktu athygli á alvarlegu ástandi Kjalarnesvegar sem verið hefur í ólestri mörg herrans ár.

Þetta ágæta fólk hefur margt hvert misst nákominn ættingja eða skólafélaga eða aðra því nákomna á þessum vegi undanfarna áratugi eða ár. Fram kom á fundinum að hönnun nýs vegar væri u.þ.b. lokið og að skipulag virtist nánast liggja fyrir. Það virðist því ekki eftir neinu að bíða að fara í þessa brýnu samgöngubót, þ.e. í fyrsta lagi að gera svokallaðan 2+1-veg eða að tvöfalda hann og þá með skiptingu á milli.

Hæstv. samgönguráðherra segist ekki ætla að leggja fram samgönguáætlun nú á vorþingi, fyrir sveitarstjórnarkosningar. Mér er það hulið af hverju það er vegna þess að nú í haust verðum við mjög upptekin við að ræða fjárlög og annað slíkt þannig að ég veit ekki hvort við höfum nokkuð meiri tíma í haust til að ræða þessa áætlun.

Ég spyr aftur: Hvers vegna vill ráðherra ekki leggja fram þessa áætlun nú fyrir sveitarstjórnarkosningar? Þorir hann það ekki? Eða hvað er að?

Ég vil líka fá að vita: Megum við vænta þess að þessi nauðsynlega samgöngubót á Kjalarnesi verði inni í samgönguáætlun hvort sem hún kemur fram nú í vor eða á jólabókamarkaðnum í haust?