148. löggjafarþing — 29. fundur,  26. feb. 2018.

sala á hlut ríkisins í Arion banka.

[15:41]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Nú hefur það gerst að ríkisstjórnin hefur selt 13% hlut ríkisins í Arion banka. Ljóst er að ef bréf ríkisins hefðu verið seld á markaðsvirði hefði fengist mun hærra verð fyrir þau. Engin tilraun var gerð af hálfu ríkisins til að hámarka virði bréfanna. Ekkert hefur heyrst frá Framsóknarflokknum í þessari umræðu og virðist hann fylgja í blindni silkihanskastefnu Sjálfstæðisflokksins gagnvart vogunarsjóðum.

Það er mikilvægt að fá afstöðu Framsóknarflokksins í þessu máli. Þögn hans hefur verið undarleg.

Fyrir tæpu ári síðan sagði hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í þingræðu, með leyfi forseta:

„Á dögunum komu hingað áhugasamir erlendir kaupmenn og sögðust hafa keypt Arion banka. Úr herbúðum ríkisstjórnarinnar heyrðust fagnaðaróp og hér sagðir alvörufjárfestar á ferð sem væru að veðja með Íslandi en ekki á móti, þetta væru tímamót, mikil tímamót. Í hvaða skilningi eru það tímamót að erlendir vogunarsjóðir, sumir með vafasama og glæpsamlega fortíð, skuli vilja eignast hér banka og reka? Er mönnum ekki sjálfrátt?“

Hæstv. ráðherra heldur áfram:

„Og hefur ríkisstjórnin sett það niður fyrir sér hvernig fjármálakerfið á Íslandi á að vera? Hefur ríkisstjórnin einhverja hugmynd um það eða á að láta „markaðinn“ um þetta eins og fleira?“

Enn heldur hæstv. ráðherra áfram:

„Það er í raun merkilegt til þess að hugsa að almenningur og ríkið skuli hafa verið nógu góð til að taka á sig stóran skell við hrun bankanna en svo virðist ríkisstjórninni standa á sama hvernig fjármálakerfið eigi að líta út.“

Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra og formann Framsóknarflokksins: Hvernig samræmist salan á hlutabréfum ríkisins í Arion banka þessum orðum ráðherrans og stefnu Framsóknarflokksins?