sala á hlut ríkisins í Arion banka.
Herra forseti. Hæstv. ráðherra svaraði því nú ekki hvernig þetta samræmdist hans orðum sem ég vitnaði í áðan. En hann hefur hamrað svolítið á þessum afkomuskiptasamningi og þá er bara best að spyrja út í hann.
Fjármálaráðherra fagnaði mjög þessum samningi hér síðast og sagði að við þingmenn ættum að gleðjast yfir honum vegna þess að þá fengi bankinn meira fyrir sinn hlut ef bankinn seldist á hærra verði. En sú hætta er að sjálfsögðu fyrir hendi að vogunarsjóðirnir muni minnka efnahag bankans áður en hann verður seldur. Selji verðmæt dótturfélög eins og Valitor og Stefni – sjóðstýringu út úr bankanum. Vogunarsjóðir hafa bara eitt markmið. Það er að hagnast sem mest. Og nú þegar ríkið hefur selt bréfin á undirverði, geta þeir gert það sem þeir vilja.
Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Hver er skoðun hans á þessum afkomuskiptasamningi í ljósi þess að vogunarsjóðirnir geta einfaldlega minnkað efnahag bankans og þá fáum við bara lægra verð? Það munu þeir alveg örugglega gera. Ég held að menn ættu nú ekki að fagna svona mikið yfir þessum samningi fyrr en þeir sjá hvað kemur út úr honum og ég er ansi hræddur um að vogunarsjóðirnir muni fagna enn þá meira en við.