148. löggjafarþing — 29. fundur,  26. feb. 2018.

sala á hlut ríkisins í Arion banka.

[15:46]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Sá sem hér stendur hefur reyndar aldrei fagnað þessu, en við erum hins vegar í tíma þar sem eigendur bankans eru þeir sem þeir eru vegna þess að það var til gluggi í stöðugleikaskilyrðunum fyrir þá að kaupa sig inn. (Gripið fram í.) Þeir eru þarna inni. Þess vegna eru þeir eigendur. Við erum að reyna að komast yfir þann hjalla, komast inn á heilbrigt svið. Þess vegna hefur ríkisstjórnin haft þá skýru sýn að við vinnum að hvítbók um það hvernig við sjáum fjármálakerfið fyrir okkur inn í framtíðina þar sem það þjóni heimilum og fyrirtækjum með eðlilegum og skynsamlegum hætti.

Það mun engu breyta hverjir eru eigendur að þessum banka þó að ríkið eigi 98 og 100% í hinum bönkunum. Við munum geta sett löggjöf um þann fjármálamarkaðsramma sem við viljum hafa þegar sú niðurstaða liggur fyrir. Það mun engu breyta.

Ég tel mjög mikilvægt að menn vandi sig (Forseti hringir.) mjög vel í þessu ferli, tryggi hagsmuni ríkisins í hvívetna. Ég fullyrði að það sé verið að vinna með þeim hætti.