148. löggjafarþing — 29. fundur,  26. feb. 2018.

ummæli þingmanns í Silfrinu.

[15:53]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Herra forseti. Það er rökstuddur grunur um að mögulega hafi lögum og reglum um þingfararkostnað ekki verið fylgt. Það er ástæðan fyrir því að forsætisnefnd er að vinna í þessu máli því að það er rökstuddur grunur. Þá þarf forsætisnefnd að hafa eftirlit með skrifstofu Alþingis og þeim fjármunum sem er útdeilt þar. Það er nákvæmlega það sem við erum að gera.

Ég er sammála hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur um að það sé rökstuddur grunur að við þurfum að skoða þessi mál. Um það er ekki deilt. Ef menn misskilja svo mál hennar þannig að rökstuddur grunur þýði bara hvort lögreglan eigi að hefja rannsókn, sakamálarannsókn, þá er það þeirra misskilningur. Þórhildur Sunna hefur leiðrétt hann. En það er rökstuddur grunur, við þurfum að skoða þetta mál og við erum að því. Nefndin hefur kallað eftir greinargerð frá skrifstofu Alþingis um framkvæmd reglna og laga skrifstofunnar þegar kemur að þingfararkaupi. (Forseti hringir.) Það er staðan núna. Svo gætum við þurft að skoða málið út frá siðareglum. Komið er rökstutt erindi til nefndarinnar frá Birni Leví Gunnarssyni. Við viljum bara rannsaka það. Við höfum lögbundna skyldu í forsætisnefnd til að gera það. Það er það sem við munum gera og erum að gera.