ummæli þingmanns í Silfrinu.
Herra forseti. Ég ætla að taka aðeins annan vinkil á þetta mál. Hafa hv. þingmenn fylgst með umræðu í fjölmiðlum, á kaffistofum, á sundstöðum og umræðum úti um allt land?
Almenningur treystir okkur ekki. Hér mælist traust á Alþingi 22% meðal þjóðarinnar, 30 prósentustigum undir því sem gerist að meðaltali annars staðar í vestrænum ríkjum. Það þýðir einfaldlega ekki í hvert skipti sem við erum beðin um einhverjar upplýsingar, að við köstum sandi í tannhjólin til þess að hægja á öllu og reyna að hylma yfir hluti.
Nú skulum við bara sameinast um að koma með þetta allt upp á borðið. Það er líka betra fyrir þá sem eru sakaðir um mögulegt lögbrot að hlutirnir komist bara á hreint. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Ef við höfum ekkert að fela skulum við fara nokkur ár aftur í tímann og birta þær upplýsingar sem beðið er um. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)