148. löggjafarþing — 29. fundur,  26. feb. 2018.

ummæli þingmanns í Silfrinu.

[15:57]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Það er nú ekki þannig að lögmannastéttin, með fullri virðingu fyrir henni og öllum sem í henni starfa, hafi einkaleyfi á íslenskri tungu. Það er bara ekki þannig.

Hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir útskýrði hérna mjög vel hvað hún ætti við. Hún útskýrði mjög vel að það væri ekki það sama og hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins rembast við að reyna misskilja hér. Hv. þingmaður nefndi rökin hér, þannig að mig langar að biðja hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sér í lagi hv. þingmenn, Birgi Ármannsson og Brynjar Níelsson, að hlusta bara á það sem hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sagði. Hún útskýrði mál sitt afskaplega vel og alveg skýrt.

Það er alveg ljóst að hún var ekki að tala um rökstuddan grun í því samhengi sem lögreglan notar það orðalag, það var alveg skýrt. Hún var að nota það í því samhengi að hún telur efni til þess að rannsaka hlutinn. Það getur ekki verið skýrara og verið er að rannsaka hlutina á sinn hátt.

Annað í þessu er að umræðan snerist um eftirlitsstofnanir Íslands sem standa sig ekki í stykkinu af einhverjum ástæðum og reyndar er afskaplega lítil hefð hér á bæ fyrir aðhaldi og mótvægi í stjórnmálum almennt. Það er kjarni málsins. Ekki það hvort hv. þingmaður hafi notað einhver tvö orð sem lögmenn á þingi krefjast þess að fá að misskilja. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)