ummæli þingmanns í Silfrinu.
Virðulegi forseti. Við erum í rauninni að tala um traust þingsins, eins og hv. þm. Logi Einarsson kom inn á. Ástæðan fyrir því að ég spurði þessarar spurningar er t.d. sú að traustið er svona lítið. Þegar upp koma ásakanir eru þær sjálfkrafa álitnar sannar, bara því að þær koma fram. Þess vegna spyr ég: Eru þær sannar eða ekki? Ég vil fá það upp á borðið til þess þá að hrekja þær og vantraustið gagnvart Alþingi og sýna þá einfaldlega svart á hvítu að þær mýtur sem eru í gangi eru ekki sannar. Eða þá að við náum sannleikanum upp á yfirborðið, sýnum hvað er satt og rétt, bregðumst við því á góðan og réttan hátt og förum ekki í einhvers konar orðaskilgreiningakast. Við köllum bara hrút hrút. [Hlátur í þingsal.] Þegar allt kemur til alls snýst þetta um, sem er búið að rekja mjög vel og greinilega, að þetta getur endað í hegningarlagabroti. (Forseti hringir.) Þá verðum við líka að kalla það því nafni. Það er ekkert flóknara en það.