ummæli þingmanns í Silfrinu.
Herra forseti. Nú veit ég ekki hversu stóran hluta af þessu 22% trausti hv. þm. Jón Gunnarsson á, en það er eflaust verulegt. Það sem ég átti við með orðum mínum um að kasta sandi í tannhjólið var ekki að hylma yfir neitt heldur að átti það að lýsa því sem er vel þekkt þegar kerfi fara ósjálfrátt að verja sjálfa sig og bregðast við óþægilegum hlutum. Það á alveg jafnt við um mig og aðra þingmenn hér inni. Það sem ég segi er að talað er um þessa hluti úti um allt í samfélaginu á hverjum degi. Um leið og ég tek undir með hv. þm. Þorsteini Víglundssyni um að við eigum að tala varlega og við eigum auðvitað ekki að segja hluti sem ekki er innstæða fyrir, er full ástæða hjá Pírötum og öðrum til að leggja áherslu á þessi mál og að við höfum frumkvæði að því að birta allar upplýsingar sem ekki eiga að vera neitt leyndarmál. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)