ummæli þingmanns í Silfrinu.
Virðulegi forseti. Mér finnst það sem hv. þm. það sem Jón Gunnarsson sagði hérna áðan einmitt undirstrika tilraun til þess að drepa málinu á dreif.
Hann fór að tala um að hér í pontu væru menn að saka starfsmenn þingsins um hitt og þetta. Ég vil vekja athygli á því að hv. þm. Jón Gunnarsson sjálfur sem byrjaði á að tala um það.
Þessi umræða hófst með því að hv. þm. Birgir Ármannsson kvartaði undan því hvernig hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir talaði í viðtali í gær, ekki hér í pontu. Það má vera að það sé nýtt að slíkt sé tekið upp í þingsal. Ég átta mig alveg á því að fólk getur verið móðgað yfir hlutum, ég verð oft mjög móðgaður sjálfur, m.a. yfir því sem hv. þm. Jón Gunnarsson segir ef út í það er farið, en læt það liggja á milli hluta í bili.
En í grundvallaratriðum er verið að kvarta undan því að þetta mál sé rætt. Í grundvallaratriðum er verið að kvarta undan því að haft sé orð á því að stofnanir samfélagsins sinni ekki eftirlitsskyldum sínum, hvort sem það er Alþingi, aðrar stofnanir eða þingmenn. Og þessi ofboðslegi ótti við að það sé yfir höfuð rætt finnst mér segja sína sögu þegar það kemur frá hv. þm. Jóni Gunnarssyni. Ég get alla vega sagt það fyrir mitt leyti, ég veit ekki nákvæmlega hvernig framhald mála á alltaf að vera á Íslandi, en pólitísk ábyrgð á Íslandi er slæmt djók og það er ekki málið núna að þegja yfir því, allra síst og þvert á móti. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)