148. löggjafarþing — 29. fundur,  26. feb. 2018.

ummæli þingmanns í Silfrinu.

[16:11]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Hér erum við komin á kunnuglegan stað í umræðunni, þ.e. menn fara að fara á flótta frá eigin orðum og ábyrgð sinni gagnvart því að standa við það sem þeir segja. Hér er reynt að gera það að umtalsefni sem ég sagði áðan, og sagt að ég sé ofboðslega óttasleginn yfir því að skoða eigi þessi mál, alveg miður mín yfir því, og að ég sé að reyna að taka þátt í því að drepa málinu á dreif.

Virðulegur forseti. Ég held að væri ágætt í lok þessarar umræðu að hæstv. forseti færi yfir það hvernig þingið og forsætisnefndin hefur brugðist við þessu. Þeim hv. þingmönnum sem svona tala er fullkunnugt um það, því að það er með þeirra þátttöku sem umræðan hefur átt sér stað á fundum formanna þingflokka, á fundum forsætisnefndar, þar sem farið er nákvæmlega yfir þessi mál, þar sem enginn hefur hreyft andmælum við því að hér verði allt uppi á borðum, að birtar verði upplýsingar aftur í tímann, að skýra þurfi þessar reglur. Ég tek fyllilega undir það. Ekkert okkar hefur talað gegn því hér. En verið er að reyna að tortryggja málin, virðulegur forseti, með þeim hætti að fólk úti í bæ, sem getur eðlilega ekki verið eins vel inni í málunum, haldi að verið sé að reyna að moka hér yfir einhvern skít. Slíkt er ómerkilegur málflutningur, virðulegur forseti. Hann er ekki viðeigandi og (Forseti hringir.) hann er ekki samboðinn þinginu. Ég bið bara um að það hætti, að menn taki á þessu með viðeigandi hætti og öllum þeim eðlilegu ráðum sem þingið á að beita í þessum efnum.