148. löggjafarþing — 29. fundur,  26. feb. 2018.

ummæli þingmanns í Silfrinu.

[16:12]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti hefur ekki veitt því athygli að fleiri hafi óskað eftir að ræða fundarstjórn. Er það rétt hjá forseta? Ef svo er vill forseti segja það eitt af tilefni þessarar umræðu að ég held að það sé best að verkin tali fyrir hönd Alþingis í þessum efnum. Forseti hyggst ekki fara hér í rökræður um stöðu mála. Þær eru á sínum rétta vettvangi eins og lög, þingsköp og lög um þingfararkostnað og þingfararkaup gera ráð fyrir. Þessi mál eru til umfjöllunar í forsætisnefnd og úrlausnar þar. Þar eiga allir þingflokkar sína fulltrúa eða áheyrnarfulltrúa. Sömuleiðis hefur verið haft mikið samráð við formenn þingflokka um þetta mál og verður gert áfram.

Ég vænti þess að verk af hálfu Alþingis muni mæta þeirri umræðu og því ákalli sem er um betri framkvæmd þessara mála og meiri upplýsingar, en legg þingmönnum sjálfum það í vald að meta hversu mikið þeir meta virðingu Alþingis eða bæta stöðu þessara mála með því að ræða það með þeim hætti sem hér hefur verið gert í þingsalnum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)