lestrarvandi og aðgerðir til að sporna gegn honum.
Hæstv. forseti. Ég þakka Guðmundi Andra Thorssyni fyrir að hefja máls á þessu mikilvæga máli og hlýddi á innblásna ræðu um ilmandi bækur og fleira. Eins vil ég þakka hæstv. menntamálaráðherra, Lilju Alfreðsdóttur, fyrir að vera hér til staðar og flytja sína ræðu.
Nú eru skólamál í brennidepli því að í nýlegri skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar kemur fram að kunnáttu nemenda í íslenskum skólum hrakar samkvæmt PISA-mælingum, þar sem athygli er beint að færni í læsi, stærðfræði, náttúrufræði og fleiru. Það særir þjóðarstoltið þegar kemur í ljós að íslenskir nemendur standa verr að vígi en jafnaldrar þeirra á Norðurlöndum. Ekki er hægt að segja að þetta séu nýjar fréttir þar sem málsmetandi menn lýsa yfir áhyggjum sínum af ástandinu, þungir á brún, og að ungir drengir séu margir ekki læsir sér til gagns að loknum grunnskóla, oftar en ekki vegna þess að áhuginn eða hvatningin er ekki fyrir hendi.
Fjölbreytt lesefni og hentugt námsefni ætti að standa nemendum til boða þegar skólaganga hefst og meðan á henni stendur. Foreldrar, afar og ömmur, eldri systkini og frændur og frænkur eru stór partur af námsferli okkar allra því að samtal fullorðinna við börn frá frumbernsku er grunnur að því þau sjálf geti sagt frá og virki eðlislæga forvitni barnsins, syngja með þeim og segja þeim sögur. Lestur fyrir börn á unga aldri hefur alltaf verið börnum hollur. Í mínum huga þarf ekki að fara í flóknar og viðamiklar rannsóknir til að sanna það.
Þegar börn hafa náð tökum á að lesa er nauðsynlegt að halda að þeim bókum með fjölbreyttu efni. Börn sem hafa annað tungumál en íslensku að móðurmáli þurfa að fá stuðning (Forseti hringir.) og eins fjölskyldur þeirra. Það er nauðsynlegt að þau fái að viðhalda móðurmáli sínu.