148. löggjafarþing — 29. fundur,  26. feb. 2018.

lestrarvandi og aðgerðir til að sporna gegn honum.

[16:37]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Ég ætla að vinda mér í það að þakka hv. þm. Guðmundi Andra Thorssyni og hæstv. ráðherra fyrir að taka umræðuna, þetta er gríðarlega mikilvæg umræða, og nýta mínar tvær mínútur til að segja beint hver mín skoðun er á því sem þarf að gera strax til að takast á við lestrarvandann. Hann birtist okkur með margvíslegum hætti en ekki síst hjá drengjum eins og mörgum hér á undan mér hefur verið tíðrætt um.

Ég tel að við þurfum að fara strax í aðgerðir, að vandinn hefjist snemma, í leikskólunum og jafnvel fyrr. Við höfum talað um sálfræðiaðstoð í framhaldsskólum, það er ekki spurning, við eigum að klára m.a. frumvörpin sem eru nú ekki mörg frá ríkisstjórninni, klára það sem er núna þegar í nefnd, um sálfræðiþjónustu í framhaldsskólum og í háskólum, fara af stað í það.

Það verða að vera skýr úrræði þar sem allir fá aðstoð þegar þeir mælast við 4–5 ára aldur. Af hverju segi ég þetta? Þetta má bara ekki bíða. Við þurfum að fjárfesta í þessari hjálp strax því að ef strákar á þessum aldri, og rannsóknir hafa sýnt þetta, eru að átta sig á að þeir eru aðeins lélegir eða eru pínu hræddir þá er mjög erfitt að fá þá aftur að bókinni eða tölvunni eða hvað það er til þess að fá þá til að lesa. Við verðum að hrósa strákunum okkar. Þeir þurfa á hrósi að halda, taka utan um þá og það þarf að gera það mjög mikið, fyrir minnstu framfarir þarf að taka utan um þá í kerfinu og heima fyrir og hvetja þá áfram því að þetta er beintengt meininu sem nefnist brottfall.

Ef við tökumst strax á við þennan vanda og fjárfestum strax í úrræðum handa þessum börnum þá vinnum við líka gegn brottfalli síðar meir. Ég man eftir könnun sem gerð var í Noregi sem sýnir að þeir krakkar sem eru komnir inn í almenna bótakerfið fyrir 25 ára aldur, það eru bein tengsl við þá sem áttu í erfiðleikum í lestri og í öðrum hlutum í grunnskóla. Þetta er því þjóðhagslegur sparnaður líka.

Þetta er fjárfesting. Við eigum að fjárfesta í betri námsgögnum, við eigum að auka aðgengi að talmeinafræðingum, (Forseti hringir.) við eigum að fara í meiri málörvun og þegar börnin okkar eru skimuð og það kemur eitthvað fram strax þá eigum við líka að fara með foreldra á námskeið til að hjálpa þeim. Þannig að þetta er fjárfesting, herra forseti, hún kemur margfalt til baka, (Forseti hringir.) við eigum að byrja strax, við eigum að hætta þessum greiningum, við eigum að byrja að hjálpa, (Forseti hringir.) við eigum að byrja að þjálfa og við eigum að byrja að kenna. Kennarar eru tilbúnir og við eigum að styðja við þá.

(Forseti (BN): Forseti vill biðja hv. þingmenn um að virða tímamörk.)