lestrarvandi og aðgerðir til að sporna gegn honum.
Forseti. Ég vil byrja á að þakka þessa góðu umræðu og taka undir með öllum þeim sem hér hafa bent á að læsi leggur fyrir það fyrsta grunn að árangri í öllum öðrum námsgreinum í skólakerfinu og er þar að auki mjög mikilvægur stuðningur við alla samfélagsþátttöku ævina á enda. Hér hefur verið ræddur þáttur menntakerfisins og mikilvægi góðra kennara og þess alls.
En mig langar dálítið að staldra við það sem málshefjandi lagði nokkra áherslu á, þ.e. bókina sjálfa, þennan grip sem við þurfum að tryggja gott aðgengi að til að styðja við læsi, og sérstaklega bókasöfnin, vegna þess að öflug bókasöfn skipta öllu máli upp á það að jafna aðstöðu fólks óháð stétt og stöðu. Ég nefni bókasöfnin sérstaklega af því að þau skipta hvað mestu máli gagnvart börnunum sem eru fólkið sem er að temja sér lestur og þarf að hafa aðgang að öllum skemmtilegu bókunum sem hv. þm. Jón Þór Ólafsson nefndi áðan. Þar er nokkurt áhyggjuefni að undanfarin ár hafa útlán dregist saman, hvort sem það er vegna þess að safnkosturinn er að úreldast eða vegna þess að það vantar meira úrval af nýjum frumsömdum og vel þýddum barnabókum. Það þurfum við að laga.
Ef við skoðum líka útlán bóka yfir allt kerfið kemur í ljós að barnabækur standa undir níu af tíu mest lánuðu bókum á síðasta ári. Þannig að það þarf að auka pening til bókasafnanna, skoða rekstrarumhverfi bókaútgáfu, stórefla barnabókagerð og stuðning við hana.
Af því að málshefjandi nefndi hér vitundarvakningu langar mig að nefna þjóðargjöf, vegna þess að við stöndum frammi fyrir því að á þessu ári er 100 ára afmæli fullveldis. Er þetta ekki efni (Forseti hringir.) í þann pakka frá þjóðinni til sjálfrar sín, að stórefla öll bókasöfn og fylla þau af nýrri kynslóð barnabóka (Forseti hringir.) sem eru frumsamdar, sem eru vel þýddar, sem fylla bókasöfn og heimili landsins þannig að börnin okkar vaxi úr grasi vel læs og spennt fyrir því að lesa allt sitt líf?