148. löggjafarþing — 29. fundur,  26. feb. 2018.

lestrarvandi og aðgerðir til að sporna gegn honum.

[17:00]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka öllum fyrir sitt ágæta framlag í umræðunni sem hefur verið góð og gagnleg og hefur vonandi gefið hæstv. ráðherra og hennar fólki ýmislegt að hugsa um.

Aðeins varðandi bókasöfnin sem hv. þm. Andrés Ingi Jónsson nefndi. Framlög til skólabókasafna hafa ekki haldist í hendur við lestrarátök. Skólabókasöfnin hafa þvert á móti verið fjársvelt. Það er til nóg af bókum sem forlögin hafa verið dugleg við að gefa út og eru ætluð börnum, góðum og skemmtilegum bókum, en þær bækur hafa ekki nægilega mikið ratað inn á skólabókasöfnin vegna þess að þau hafa ekki haft bolmagn til að kaupa bækur.

Mig langar að enda þetta á að rifja upp atvik sem ég upplifði um daginn. Mörgum varð tíðrætt um unga drengi og vanda þeirra. Ég var í búningsklefa í sundlaug og heyri þar í föður með drenginn sinn, þeir eru að spjalla saman um hitt og þetta, og drengurinn segir við pabba sinn: Pabbi, pabbi, veistu hvað kartöflur eru á íslensku? Pabbinn segir: Nei, hvað, hvað eru kartöflur á íslensku? Kartöflur á íslensku eru jarðepli, segir drengurinn og er hróðugur og kotroskinn yfir þekkingu sinni. Pabbinn er ánægður með þessa þekkingu. En ég fór að hugsa um það meðan ég var að hlusta á þá að þetta er eiginlega ekki alveg rétt hjá litla stráknum. Ég hefði kannski átt að leiðrétta hann. Því að kartöflur á íslensku eru kartöflur. Jarðepli er bara orð sem stungið var upp á að hafa um kartöflur en það rataði aldrei inn í íslenska tungu. Þessum litla dreng fannst að íslenska væri eitthvert annað mál en hann sjálfur talaði. (Forseti hringir.) Hann talaði mál þar sem kartöflur eru kartöflur en íslenska væri mál þar sem kartöflur heita jarðepli. Við þurfum að kenna drengjunum okkar og krökkunum okkar að íslenska er okkar mál. Íslenska er ekki útlenska.