148. löggjafarþing — 29. fundur,  26. feb. 2018.

lýðháskólar.

184. mál
[17:20]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svörin. Í þeim felast ákveðin fyrirheit um að hún ætli að taka þetta áfram. Ég fagna því mjög. Mér fannst þetta mjög skýrt. Þetta er í raun hluti af því sem fyrirspurnartími, óundirbúinn eða undirbúinn, skilar. Þarna eru samræður á milli löggjafarvalds og framkvæmdarvalds og ég fagna sérstaklega velvilja og skilningi ráðherra í þessu.

Lýðháskólarnir, eins og það sem er að gerast á Flateyri og er í undirbúningi, eru hluti af því að auka valkosti innan menntakerfisins, óformlegs sem formlegs. Þekkingarsamfélagið verður stærra. Og þá vil ég benda hæstv. ráðherra og fleirum á að þó að ekki sé hægt að fá formlegar einingar erum við með kerfi, fullorðinsfræðslu, framhaldsfræðslu. Við Íslendingar erum komnir svolítið langt á veg með að meta fullorðinsfræðsluna inn í skólakerfið, þá reynslu sem við öðlumst í hinu daglega lífi. Hún er ótrúlega verðmæt. Það kemur líka inn sem hluti af menntun og getur orðið formleg menntun.

Ég tel mikilvægt í þessu að hæstv. ráðherra veiti þeim á Flateyri sem eru að byggja upp mjög merkilegt verkefni skýr svör. Um leið og ég fagna því að ráðherra ætli að leggja fram frumvarp, sem ég hlakka til að ræða hér, um lýðháskóla, vitum við að það verður ekkert tilbúið fyrr en í fyrsta lagi næsta vetur. Ég tel að Flateyringar geti ekki beðið svo lengi og hvet hæstv. ráðherra til að halda áfram og taka þennan neista sem er þar, sem er líka á Seyðisfirði, LungA, veita þeim svigrúm til að lifa af þangað til við hér á þingi höfum tekið frumvarpið til umræðu og afgreitt. Hvert missiri skiptir máli, bæði fyrir Flateyri en líka þá sem eygja ákveðna von um að komast inn í skólakerfið með þessum hætti, stíga varfærin skref og halda síðan áfram út í lífið með aðeins ríkulegra nesti en áður. Ég hvet ráðherra til verka. Ég treysti henni einlægt til að taka þetta mál áfram.