heilbrigðisáætlun.
Hæstv. forseti. Ég þakka fyrirspurn hv. þm. Höllu Signýjar Kristjánsdóttur og svör hæstv. ráðherra. Þetta er margþætt spurning og ég get tekið undir að stefna áætlunar er mikilvæg.
Mitt innlegg í þessa umræðu snýr að því sem hv. þingmaður kom inn á í spurningu sinni, þ.e. að forvörnum og lýðheilsu. Hæstv. ráðherra nefndi hér lýðheilsuvísa og að fá yfirsýn yfir stöðuna og tengdi það ágætlega við stefnuyfirlýsingu hæstv. ríkisstjórnar. Þar kemur m.a. fram að stefnt skuli að beitingu efnahagslegra hvata til eflingar lýðheilsu. Gæti hæstv. ráðherra komið inn á þann lið í svari sínu í lok umræðunnar, hvar það er og inn í áætlun og stefnu, þ.e. hvað hæstv. ráðherra sér fyrir sér í þeim efnum?