148. löggjafarþing — 29. fundur,  26. feb. 2018.

heilbrigðisáætlun.

196. mál
[17:37]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra Svandísi Svavarsdóttur greinargóð svör. Ég heyri að þetta er í góðum höndum. Það er gott að heyra að þessi vinna sé í farvatninu. Mér finnst það skipta miklu máli. Ég þakka líka þeim þingmönnum sem komið hafa inn í umræðuna. Ég tek undir orð þeirra, það skiptir máli að sérhæfing og hlutverk heilbrigðisstofnana um allt land séu skilgreind, því að þær þurfa að vinna eftir ákveðinni fjárhagsáætlun og áætlanagerð. Þegar heilbrigðisáætlun er komin og komin til að vera geta þær unnið lengra fram í tímann og sérhæft sig betur. Það er mikilvægt fyrir okkur að eiga heilbrigðisáætlun, hún er mikilvægt plagg inn í gerð fjármálaáætlunar sem fram undan er. Heilbrigðisstefna er náttúrlega rauður þráður í gegnum alla málaflokka ríkisins og ætti raunhæf og ábyrg stefna að vera forsenda og stór breyta í öðrum málaflokkum.

Þess vegna skiptir þetta gríðarlegu máli og vonandi kemur þetta sem fyrst í ljós. Ég treysti því að þessi vinna sé í góðum höndum. Þetta er stórt lýðheilsumál og því mikilvægt. Það snýr að mörgum þáttum eins og byggðamálum og þeirri stöðu sem við viljum sjá að öll þjóðin búi við, hvort sem það er Landspítalinn eða samvinna við hann, að Landspítalinn skilgreini sig líka og sérhæfi sig, því að við erum t.d. að missa marga sérfræðinga af landsbyggðinni. Það skiptir gríðarlega miklu máli að þetta komist á sem fyrst. Ég segi eins og hv. þm. Guðjón Brjánsson, við þurfum ekki áætlun, við þurfum stefnu. Ég hefði haldið að það væri nánast sama orðið.