innbrot á höfuðborgarsvæðinu.
Herra forseti. Eins og mörgum er kunnugt hefur riðið yfir höfuðborgarsvæðið, Stór-Hafnarfjarðarsvæðið, innbrotahrina og töluvert mikið er um afbrot. Síðan þegar bornar eru saman tölur frá því í fyrra er fjölgunin sem slík ekki mjög mikil en engu að síður þó nokkur. Eftir stendur miðað við upplýsingar eftir fréttaflutning og samtöl við lögreglu eftir þessa innbrotahrinu að það leikur sterkur grunur á að um skipulagða brotastarfsemi sé að ræða núna í janúar þar sem farið var í innbrot í heimahús á svæðinu. Það er eins og menn sjái það og fari inn í svefnherbergisganga sem hafa ekki hreyfiskynjara o.s.frv. Þetta hefur verið eins og einn orðaði það, linnulaust, byrjaði um miðjan desember og hefur staðið nánast linnulaust síðan. Það er eðlilegt að menn ræði þetta og hafa bæjarstjórar á svæðinu, bæjarstjórinn í Garðabæ og fleiri, talað um ólíðandi ástand. Það sama er í Hafnarfirði.
Það er eðlilegt að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. dómsmálaráðherra hvort ráðherra hafi fundað sérstaklega út af þessu sérkennilega og vonda ástandi á höfuðborgarsvæðinu varðandi innbrot í heimahús og hvort hæstv. ráðherra hafi beitt sér fyrir að farið verði í tilteknar aðgerðir til að stemma stigu við innbrotum á svæðinu. Auðvitað er strax búið að draga fram að fjölga þurfi lögreglumönnum. Það er hluti af því að styrkja og efla innviði landsins, þar á meðal lögregluna, þ.e. að fjölga lögreglumönnum. En ég er að forvitnast með þessari fyrirspurn um hvort hæstv. ráðherra hafi rætt við og farið yfir þessi mál með lögreglunni og hvað hægt sé að gera til að stemma stigu við innbrotum og hvaða skilaboð hæstv. ráðherra hafi til sveitarstjórnarfólks, til íbúa á svæðinu og um leið þeirra sem eru að skipuleggja og leggja fyrir sig að vaða inn í hús fólks, ekki bara á skítugum skónum heldur í vafasömum tilgangi. Það er þessi óþægilega tilfinning þegar fólk kemur heim, og ég hef rætt við suma sem hafa staðið frammi fyrir innbrotum, það er vanmáttur. Hvernig er hægt að auka öryggiskennd fólks á svæðinu? Er eitthvað sem ráðherra sér í spilunum? Er hægt að stemma stigu við þessu með markvissari aðgerðum af hálfu stjórnvalda?