148. löggjafarþing — 29. fundur,  26. feb. 2018.

innbrot á höfuðborgarsvæðinu.

211. mál
[17:50]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir þessa fyrirspurn. Það er mikilvægt að taka þetta upp við hæstv. dómsmálaráðherra og ég þakka jafnframt hæstv. ráðherra fyrir hennar svör og viðbrögð. Það er vel að hæstv. ráðherra hefur gengið eftir svörum og tekið málið upp við lögreglu. Eins og hefur komið fram þurfa viðbrögðin að vera hröð, sterk og skýrt gefið til kynna að það sé tekið á þessum vanda sem við höfum orðið vör við í okkar yfirferð í kjördæmaviku. Við hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fórum og hleruðum hjá bæjarstjórnum í Garðabæ, í Kópavogi, Hafnarfirði. Það virðist vera, eins og komið hefur fram, um að ræða þaulskipulagða, ískalda og yfirvegaða glæpastarfsemi. Það hefur einkennt þessa starfsemi að það er verið að fara inn í hús fólks á daginn og það er auðvitað virkilega óþægilegt.(Forseti hringir.)

Ég bið hæstv. ráðherra þegar hún kemur hér síðar í umræðuna að skýra hvert framhaldið verður á þessu máli.