148. löggjafarþing — 29. fundur,  26. feb. 2018.

innbrot á höfuðborgarsvæðinu.

211. mál
[17:52]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda fyrir að hafa komið fram með þessa fyrirspurn. Hún kemur í sjálfu sér sem rökrétt framhald af þeirri umræðu sem varð í síðustu viku í þinginu um löggæslu í landinu, lögregluna. Ég hlustaði á svör hæstv. ráðherra sem voru góð og gegn og þakka fyrir þau. Engu að síður, þegar öllu er á botninn hvolft, verður ekki aukið öryggi borgaranna nema með því að styrkja lögregluna, koma til móts við þær ég vil segja hógværu óskir sem hafa komið frá lögreglunni um að fjölgun verði og hér verði alvörueftirlit og frumkvæðisvinna sem hefur ekki verið hægt að sinna vegna þess að búið er að fækka svo gríðarlega vöktum í lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, eins og fram kom í síðustu viku. Það vantar 88 lögreglumenn til starfa í Reykjavík svo þjónusta sé með líkum hætti og hún var um síðustu aldamót.

Það verður ekki undan því vikist að setja nú afl í að (Forseti hringir.) efla löggæsluna á höfuðborgarsvæðinu til að reyna að hafa hemil á og koma í veg fyrir þá brotastarfsemi sem er, eins og hér hefur komið fram, mjög mikil áþján fyrir fólk.