gagnaver.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir að taka þetta mikilvæga mál upp og hæstv. iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fyrir hennar svör. Ég hlakka til að komast yfir þessa skýrslu. Við erum auðvitað að horfa hér blákalt inn í framtíðina með þennan möguleika og mikilvægt að huga að þessum málum. Þetta snýr að orkustefnu, þetta snýr að fjarskiptum, þetta snýr að lagaumhverfinu og eins og hv. þingmaður kom inn á og hæstv. ráðherra þá snýr þetta að skattumhverfinu.
Hv. efnahags- og viðskiptanefnd beitti sér fyrir lagabreytingum árið 2016 sem snúa að því sem kallað er föst starfsstöð til að liðka til fyrir komu gagnavera og efla starfsemi þeirra hér á landi. Ég vil fyrst og fremst taka undir það sem komið hefur fram í umræðunni um mikilvægi þess að skoða þessi mál og hlakka til skoða skýrsluna.