störf þingsins.
Herra forseti. Á morgun verður tekin ákvörðun um það hjá ASÍ hvort eigi að segja kjarasamningum lausum, 100.000 vinnumanna, eða heimila að aðildarfélögin geti gert það. Þetta er það einstaka, stærsta málefni samfélagsins sem við erum að semja um núna.
Ég hef óskað eftir sérstakri umræðu alveg frá því 14. desember til að ræða þetta mál, sátt á vinnumarkaði og kjararáð, við forsætisráðherra. Mér var bent á að ég gæti rætt það í janúar. Ég sendi þá beiðni og vildi fá umræðuna eftir að skýrslur hæstv. forsætisráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, væru komnar fram. Hún setti á laggirnar tvær nefndir sem voru nýlega búnar að gefa út skýrslur, en áttu ekki að koma fyrr en 10. febrúar, komu svo held ég 14. febrúar. Ég nefndi að vildi fá umræðuna þá. Ekki hefur orðið við því. Í þessum lið — ég er að ræða störf þingsins — segir, með leyfi forseta:
„Forseti getur sett á dagskrá þingfundar sérstaka umræðu þar sem þingmenn geta fengið tekið fyrir mál hvort heldur er í formi yfirlýsingar eða fyrirspurnar til ráðherra. Þingmaður skal afhenda forseta skriflega beiðni …“ — og svo framvegis.
En hvers vegna er þetta? Jú, ef málefnið er „… í senn svo mikilvægt, umfangsmikið og aðkallandi að það rúmist ekki innan umræðumarka sérstakrar umræðu …“
Hvað segja hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. forsætisráðherra um þetta mál? Sem forsætisráðherra sagði Bjarni Benediktsson í stefnuræðu þegar þing kom saman í haust, með leyfi forseta:
„Það er lítil samvinna til staðar og skipulagið í kjaraviðræðum er tilviljanakennt …“ — Heldur svo áfram — „… er stærsti einstaki veikleiki íslenskra efnahagsmála um þessar mundir …“
Katrín Jakobsdóttir sagði við stjórnarmyndun, með leyfi forseta:
„Ég held að þetta sé stærsta verkefni þeirrar ríkisstjórnar sem tekur við, að skapa sátt á vinnumarkaði, …“
Ég óska eftir sérstakri umræðu þar sem þingið getur talað saman áður en ákvörðunin er tekin á morgun um að segja upp kjarasamningum 100.000 launamanna, og ræða það hér í þinginu við forsætisráðherra þannig að við gefum skilaboð til samfélagsins (Forseti hringir.) hvað við ætlum að gera í þessu máli. Það er ýmislegt sem við getum gert. Mér er sagt að ég geti fengið umræðu á fimmtudaginn, daginn eftir ákvörðunina. (Forseti hringir.) Ég vil beina því til hæstv. forsætisráðherra og forseta þingsins að við fáum þessa sérstöku umræðu á dagskrá á morgun. (Forseti hringir.) Það er það mikilvægt.