148. löggjafarþing — 30. fundur,  27. feb. 2018.

störf þingsins.

[13:49]
Horfa

Páll Magnússon (S):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir stóð hér áðan upp til varnar þeim rétti manna að móðga aðra og að vissu leyti eru það sjálfsögð mannréttindi.

Hv. þingmaður gerði hins vegar rúmlega það í sjónvarpsþætti hér um helgina. Hún staðhæfði að nafngreindur þingmaður lægi undir rökstuddum grun um glæp, um fjársvik. Nú vill þannig til að það eru hæg heimatökin hér í þinginu að ganga úr skugga um þetta því að sá grunur hlýtur þá að vera fyrir hendi hjá þeim aðila sem á að hafa eftirlit með því sem hér er á ferð, þ.e. hann hlýtur að vera fyrir hendi hjá þinginu sjálfu eða skrifstofu þess.

Stjórn þingsins eða skrifstofa þingsins getur núna gengið úr skugga um það, hún getur kveðið upp úr um það, hvort þessi grunur sé fyrir hendi. Hvort fölskum faktúrum hafi verið framvísað, hvort fé hafi verið svikið út úr Alþingi með þessum hætti, hvort að slík könnun sé í gangi eða hvort fyrir liggi hjá þinginu, hjá eftirlitsaðilanum, rökstuddur grunur um að þetta hafi verið gert.

Úr þessu er hægt að fá skorið hér í þinginu, hjá okkur sjálfum. Því að annars er þetta ekki rökstuddur grunur, hv. þingmaður, heldur það sem mig grunar, órökstuddar dylgjur.