148. löggjafarþing — 30. fundur,  27. feb. 2018.

störf þingsins.

[13:53]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Virðulegur forseti. Mig langar einnig að gera stöðu efnahagslífsins að umtalsefni. Það er alveg ljóst að við höfum rætt á vettvangi stjórnmálanna allt frá síðasta hruni mikilvægi þess að treysta stöðugleika í efnahagslífinu í ljósi skelfilegrar reynslu af þeim óstöðugleika sem við upplifðum á fyrsta áratug þessarar aldar og raunar mun lengra aftur ef því er að skipta.

Staðreyndin er hins vegar sú að viðvörunarljósin eru farin að blikka æðivíða í efnahagslífinu og einmitt núna í aðdraganda framlenginga á kjarasamningum sem er yfirvofandi um mánaðamótin er rætt um viðsjárverða stöðu krónunnar og efnahagslífsins alls.

Ójafnvægið er alveg jafn mikið og það hefur alltaf verið og ástæðan er einföld: Það hefur engu verið breytt. Ekki hefur verið ráðist að rót vandans. Og þessi ríkisstjórn hefur lýst því yfir, þrátt fyrir, getum við sagt, hillumetra af skýrslum um þau vandamál sem fylgja hagstjórn með íslenska krónu, að markmiðið, útgangspunktur ríkisstjórnarinnar, sé óbreytt stefna.

Stefna ríkisstjórnarinnar í myntmálum virðist vera þessi samkvæmt stjórnarsáttmála, með leyfi forseta:

„Nefnd um endurskoðun peningastefnunnar mun ljúka störfum og í kjölfarið verða gerðar nauðsynlegar breytingar á ramma stefnunnar.“

Í þessu er engin efnisleg afstaða til þess hvaða breytingar þurfi að gera.

Það er fullreynt með hina ágætu mynt. Við erum í sömu sveiflu og við höfum verið í undanfarna áratugi, við sjáum sömu hættumerkin, við sjáum sömu einkennin. Við sjáum fyrirtæki leggja upp laupana, fyrirtæki segja upp starfsfólki, allt á grundvelli ógnarsterkrar stöðu krónunnar (Forseti hringir.)sem er að grafa undan tilvist útflutningsatvinnugreina okkar. Við höfum séð þetta vandamál áður, það var það sama fyrir áratug, (Forseti hringir.)það var það sama fyrir tveimur áratugum síðan. Það er kominn tími til þess að ráðast að rót vandans. (Gripið fram í: Það er rétt.)