hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl.
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum nr. 106/2000, um mat á umhverfisáhrifum, og lögum nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
Megintilgangur frumvarpsins er að bregðast við rökstuddu áliti Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), dags. 4. maí 2016, um að Ísland hafi ekki innleitt að fullu ákvæði 11. gr. tilskipunar 2011/92/ESB um mat á umhverfisáhrifum, sem fjallar um kærurétt almennings. Að auki er tilgangur frumvarpsins að gera breytingu á kæruheimild laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Frumvarpið var birt á vefsíðu ráðuneytisins til kynningar og athugasemda og hafa nokkrar breytingar verið gerðar á frumvarpinu í kjölfar framkominna athugasemda. Frumvarpið var lagt fram á 146. löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu. Til stóð að leggja frumvarpið fram að nýju á 147. löggjafarþingi en ekki náðist að leggja það fram á Alþingi vegna stutts starfstíma þingsins. Frumvarpið er nú lagt fram að nýju óbreytt.
Meginmarkmið frumvarpsins er að tryggja fulla innleiðingu á ákvæði 11. gr. tilskipunar 2011/92/ESB sem fjallar um heimild til að kæra ákvörðun, athafnir og athafnaleysi í tengslum við þátttökurétt almennings hvað varðar mat á umhverfisáhrifum framkvæmda er falla undir lög um mat á umhverfisáhrifum.
Samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er heimilt að kæra vissar ákvarðanir stjórnvalda sem teknar eru á grundvelli laga um mat á umhverfisáhrifum. Í lögunum er hins vegar ekki að finna sérstaka kæruheimild vegna athafna og athafnaleysis.
Í athugasemdum ESA við innleiðingu á tilskipuninni er bent á að fyrrgreind ákvæði 1. mgr. 11. gr. tilskipunar 2011/92/ESB tilgreini þrjú atriði sem skuli vera kæranleg, þ.e. ákvörðun, athöfn og athafnaleysi. Athöfn og athafnaleysi eigi því að vera sérstaklega kæranlegt á sama hátt og ákvörðun. Til að bregðast við athugasemdum ESA er í frumvarpinu lagt til að heimilt verði að kæra athafnir og athafnaleysi stjórnvalda jafnóðum í tengslum við þátttökurétt almennings samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum.
Í frumvarpinu er lagt til að þátttökuréttur almennings verði skilgreindur í lögum um mat á umhverfisáhrifum en hann varðar rétt til upplýsinga og til að koma að athugasemdum og gögnum við málsmeðferð samkvæmt lögunum.
Jafnframt er lögð til breyting á 14. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum sem fjallar um málskot. Lagt er til að tiltekin verði þau tilvik athafna og athafnaleysis sem eru kæranleg og varða þátttökurétt almennings. Sem dæmi um slíkt er þegar Skipulagsstofnun eða sveitarstjórn lætur hjá líða að kynna almenningi niðurstöðu sína um matsskyldu tiltekinnar framkvæmdar, framkvæmdaraðili lætur líða hjá að kynna almenningi tillögu að matsáætlun eða leyfisveitandi birtir ekki opinberlega ákvörðun sína um útgáfu leyfis og niðurstöðu álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum innan tveggja vikna frá útgáfu leyfis.
Eins og á þessu má sjá er fyrst og fremst um að ræða formsatriði sem aðilum ber að framfylgja hvort eð er, en hér vísast sérstaklega til upptalningar á bls. 14–15 í frumvarpinu.
Í sumum tilfellum geta verið óljós mörk milli kæranlegra athafna og athafnaleysis. Það flokkast t.d. sem athafnaleysi ef framkvæmd og frummatsskýrsla er ekki kynnt almenningi. Ef kynningin fer hins vegar fram en telst ekki framkvæmd með fullnægjandi hætti er um að ræða kæranlega athöfn.
Í frumvarpinu er einnig lögð til breyting á 4. gr. laga um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sem fjallar um málsmeðferð og kæruaðild. Um er að ræða orðalagsbreytingu sem endurspeglar með skýrari hætti ákvæði tilskipunarinnar sem kveður á um að umhverfisverndarsamtök eigi ætíð lögvarinna hagsmuna að gæta þegar um er að ræða ákvarðanir, athafnir og athafnaleysi sem falla undir ákvæði tilskipunarinnar um þátttökurétt almennings.
Með breytingu á 4. gr. laga um úrskurðarnefndina er einnig lagt til, til samræmis við breytingu á lögum um mat á umhverfisáhrifum, að athöfn og athafnaleysi stjórnvalda sem lýtur að þátttökurétti almennings samkvæmt síðargreindum lögum verði kæranleg.
Umhverfismat framkvæmda er ferli sem samanstendur af nokkrum þáttum. Samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum hefst ferlið á matsáætlun framkvæmdaraðila og lýkur með áliti Skipulagsstofnunar um umhverfisáhrif framkvæmdarinnar. Gert er ráð fyrir þátttöku almennings á nokkrum stöðum í þessu ferli mats á umhverfisáhrifum.
Í 6. kafla greinargerðar með frumvarpinu er fjallað um fjárhagsáhrif frumvarpsins. Þar kemur fram að breyting á kærurétti geti leitt til fjölgunar kæra sem getur því jafnframt haft áhrif á málshraða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Málshraði vegna hvers máls hjá úrskurðarnefnd fyrir árið 2017 var u.þ.b. níu mánuðir að meðaltali, en lögum samkvæmt er miðað við þriggja til sex mánaða málshraða hjá nefndinni. Aukið umfang úrskurða er því talið geta kallað á aukin útgjöld úrskurðarnefndarinnar til frambúðar og er því sem varúðarráðstöfun gert ráð fyrir að þau útgjöld muni nema einu stöðugildi. Á fjárlögum 2018 voru gerðar ráðstafanir til að auka málshraða nefndarinnar og því er hér gert ráð fyrir að auknum útgjöldum er kunna að hljótast af frumvarpinu verði mætt með breyttri forgangsröðun og/eða hagræðingu innan málefnasviðsins.
Í frumvarpinu er einnig lagt til að kæruheimild 65. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála verði samræmd öðrum lögum á málefnasviði ráðuneytisins. Samkvæmt gildandi kæruheimild er hægt að kæra allan ágreining um framkvæmd laganna, sem felur í sér opna og víðtæka heimild. Heimild þessi hefur reynst óskýr og matskennd í framkvæmd og hefur þar af leiðandi valdið réttaróvissu.
Í frumvarpinu er því, í samræmi við almenna reglu stjórnsýsluréttarins, lögð til sú breyting að heimilt verði að kæra ákvarðanir stjórnvalda er varða réttindi og skyldur viðkomandi, þ.e. svokallaðar stjórnvaldsákvarðanir. Telja verður að slík kæruheimild sé fullnægjandi og feli í sér nægjanlegt réttaröryggi fyrir almenning vegna mála sem eru til meðferðar hjá stjórnvöldum og varða tiltekna hagsmuni. Gera má ráð fyrir að breyting á lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, fækki kærum.
Virðulegur forseti. Ég hef hér rakið meginefni frumvarpsins. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.