148. löggjafarþing — 31. fundur,  28. feb. 2018.

störf þingsins.

[15:05]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Að sama máli. Nú hafa verið afhjúpaðir umfangsmiklir vopnaflutningar til Sádi-Arabíu með leyfi stjórnvalda og þaðan hugsanlega til Jemens og Sýrlands. Þetta er sérstaklega alvarlegt mál, ekki síst í ljósi þess að meðal þess sem Ísland getur þó lagt af mörkum til friðarmála í heimum er mannúðar-, friðar- og hjálparstarf og að ganga á undan með góðu fordæmi. Hér er því ekki um að ræða mál sem er eingöngu lagalegs eðlis, heldur stjórnmálalegs og siðferðilegs.

Stjórnvöld hafa ríka rannsóknarskyldu þegar kemur að því að upplýsa svona mál og taka saman lista yfir slíka flutninga. Á fundi utanríkismálanefndar í morgun kom fram að a.m.k. tvisvar hafa slíkir flutningar átt sér stað á síðustu þremur mánuðum í tíð núverandi ríkisstjórnar.

Í tíufréttum á RÚV segir hæstv. forsætisráðherra, með leyfi forseta:

„Þannig að það liggur fyrir að þetta flugfélag sem um ræðir hefur núna sótt um nýja undanþágu. Utanríkisráðuneytið hefur í dag veitt neikvæða umsögn um þá undanþágu í ljósi þessarar stöðu.“

Það þýðir á mannamáli, herra forseti, að ákveðið var að stoppa þetta mál vegna þess að það komst upp um þau í fjölmiðlum, ekki vegna þess að átt hafi sér stað einhvers konar siðferðileg vitrun við ríkisstjórnarborðið.

Málið er í hnotskurn eftirfarandi:

Vopn voru flutt til Sádi-Arabíu með leyfi stjórnvalda og þaðan hugsanlega til Jemens og Sýrlands. Þá væntanlega notuð til eyðileggingar og drápa á saklausu fólki. Þau heppnu hafa mörg flúið og leitað skjóls í öðrum löndum. Og í nafni mannúðar höfum við Íslendingar tekið við nokkrum þeirra en hafnað öðrum þar sem við treystum okkur ekki til að gera betur.

Herra forseti. Þetta er hræsni, líklega þvert á alþjóðasamkomulag. Við verðum að fá allar upplýsingar upp á borðið.