almenn hegningarlög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni fyrir snjalla ræðu sem hreif okkur öll sem hlýddum á. Ég verð að segja að það var alveg sérstaklega góður punktur, sem ég hafði satt að segja ekki hugsað út í, með trúfrelsið, að þetta snýst í raun um trúfrelsi þess einstaklings sem er nýkominn í heiminn og svona lítum við á þetta.
Mig langar aðeins til að biðja hv. þingmann um að hugleiða það með mér þessa stuttu stund hvort ekki sé hætt við því að við missum umræðuna úr höndum okkar. Við erum sammála hér um hlutverk trúarinnar í samfélaginu og réttindi barna, en er samt ekki hætt við því að við missum þessa umræðu úr höndum okkar þegar hún er komin út í heiminn og út í samfélögin og farin að lifa sjálfstæðu lífi á þessum miklu tímum menningarstríðanna?