148. löggjafarþing — 32. fundur,  1. mars 2018.

almenn hegningarlög.

114. mál
[14:44]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins skrítið og það kann að hljóma, þar sem ég hef áhyggjur af menningarárekstrum, hef ég ekki sérstakar áhyggjur af því að þessi umræða snúist meira upp í andhverfu sína en önnur trúarleg umræða. Það er þannig, hafandi tekið mjög lengi þátt í trúarlegri umræðu á internetinu góða, að þetta eru alltaf umdeild mál. Það er eitthvað við trúarbrögð sem snertir mannshjartað mjög djúpt og mjög náið, sem gerir að verkum að fólk móðgast auðveldlega, það er auðsært og því finnst ráðist á sig jafnvel þegar einungis er um að ræða heilbrigða gagnrýni. Það kemur, held ég, að hluta til til vegna þess að abrahamísk trúarbrögð eru sveipuð dýrðarljóma, heilagleika, og þetta furðulega fyrirbæri guðlast er til; að þú megir ekki gagnrýna trúarbrögðin, þú mátt það ekki, það er syndugt, þá ertu einhvern veginn að vinna með skrattanum. Þetta er rosalega djúpstætt í abrahamískum trúarbrögðum. Þetta er eldfimt umræðuefni yfir höfuð.

Þótt umræðan verði oft mjög svæsin, og hætta sé á menningarágreiningi út af því, held ég að það sé miklu betra að umræðan eigi sér stað en að hún eigi sér ekki stað.