148. löggjafarþing — 32. fundur,  1. mars 2018.

almenn hegningarlög.

114. mál
[14:54]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Frú forseti. Ég ætla aðeins að taka þátt í þessari umræðu. Ég er ein af flutningsmönnum þessa máls. Ég lagði fram fyrirspurn á 145. þingi, minnir mig, um umskurði almennt, bæði stúlkna og drengja, og hef haft á þessu máli töluverðan áhuga. Ég var talsmaður barna í þeim formlega eða óformlega hópi innan þingsins á sínum tíma og lét mig meira varða málefni þeirra en ella. Ég kem reyndar innan úr skólakerfinu þannig að maður er eðli málsins samkvæmt oft að hugsa meira um aðstöðu sem börn búa við, óháð vilja sínum í sjálfu sér, þegar þau verða eldri, eins og hér hefur verið bent á. En ég lít nú þannig á að við séum öll talsmenn barna, hvort sem við erum í þessum hópi eða ekki.

Það sem við stöndum frammi fyrir varðandi þessa umræðu er að hún fari að snúast um trú og trúfrelsi í staðinn fyrir að snúast fyrst og síðast um mannréttindi barna. Ég hef átt ágætissamtöl við fulltrúa, einhverja en ekki alla, samtaka hér á landi sem hafa haft börnin í forgrunni sem eru líka alþjóðasamtök sem og aðra og það getur verið pínu snúið hjá mörgum að taka afstöðu í þessu máli. Hér hefur verið talað um sjálfsákvörðunarrétt. Það er það sem þetta á að snúast um. Sjálfsákvörðunarrétt einstaklingsins.

Ég tek undir það sem hér var rætt áðan varðandi intersex-fólkið, samkynhneigða og aðra slíka. Við höfum staðið mjög framarlega í réttindabaráttu. Heilbrigðisráðherra hyggst koma fram með frumvarp er varðar intersex. Ég held að það sé mjög mikilvægt og mér finnst að við eigum líka að vera í broddi fylkingar í mannréttindamálum hvað þetta varðar. Eins og komið hefur í ljós í heimsfréttum getur þetta litla land haft mikil áhrif.

Við þingmenn höfum eflaust öll, alla vega við sem höfum staðið að þessu máli, fengið alls konar sögur frá erlendum og innlendum aðilum, karlmönnum sem hafa verið umskornir, konum sem eru giftar umskornum körlum sem þora ekki að koma fram, skammast sín. Það eru alls konar tilfinningar í gangi og erfitt að setja sig í þau spor þar sem þetta tíðkast ekki í okkar menningu og að skilja hvaða afleiðingar þetta getur haft. Það er alveg ótrúlegt hversu mikið er um þetta, t.d. í Bandaríkjunum, enn þá.

Það er búið að skrifa heilmikið um þetta, bæði læknar og hjúkrunarfræðingar og aðrir hafa sent stuðningsyfirlýsingar við að þetta frumvarp nái fram að ganga. Það hafa verið ritaðar lærðar greinar um að afnema eigi umskurð á drengjum nema um beint læknisfræðilegt tilvik sé að ræða. Læknar telja jafnvel að þetta stríði gegn siðareglum þeirra. Skilaboð þeirra eru að það eigi ekki að framkvæma slíka aðgerð nema brýnar læknisfræðilegar ástæður liggi að baki. Ég verð að taka undir það.

Á vef sem heitir tru.is er ræða Birgis Ásgeirssonar sem flutt var í messu um daginn, sem ber nafnið Umskurn hjartans. Mig langar að vitna í hana því það er alveg rétt að þetta hefur ekki verið rætt innan kirkjunnar sem slíkt. Þess vegna er umsögn frá yfirvaldinu þar að einhverju leyti sérstök, finnst mér. Biskup segir reyndar að ekki hafi verið fjallað um þetta á vettvangi þjóðkirkjunnar, hvorki í kenninganefnd né á kirkjuþingum, en telur engu að síður að ekki beri að velkjast í neinum vafa um hvernig túlka beri predikunina, þ.e. biblíuna. Það er nú eitt af því sem við höfum staðið frammi fyrir í árþúsundir, þ.e. misjöfn túlkun á þessu riti. Hver skilur það með sínu nefi. Þess vegna skiptist fólk í margs konar trúarhópa og það má draga ýmsar ályktanir. En Birgir Ásgeirsson leggur út af texta um Jakob postula og veltir fyrir sér í því samhengi umskurðarmálunum og hugleiðir þetta og kemst að þeirri niðurstöðu og er algerlega afdráttarlaus í henni að umskurður barna sé málefnalaus aðför að vellíðan þeirra. Þá sjáum við að það er ágreiningur í þessari stétt eins og líklegast flestum, ég veit það þó ekki, mörgum, um túlkun biblíunnar á þessum orðum.

Hvort sem við erum að tala um heilbrigðiskerfið, uppeldis- og menntakerfið, segir hann, eru það stoðirnar undir okkar siðað samfélag. Sameinuð stöndum við að því, allar stéttir sem þar eru, að hlúa að hverri kynslóð og efla þroska hennar og dáð. Það leiðir okkur að þessum sáttmálum sem við höfum undirritað og þjóðir heims hafa undirritað þar sem grundvallaratriðin eru undir, heilsa og vellíðan og almennar framfarir. Og réttlæti, raunsæi og miskunnsemi, segir Birgir, eru þar leiðarljós.

Það kemur fram í barnasáttmálanum að hann feli í sér alþjóðlega viðurkenningu á að börn þarfnist sérstakrar verndar umfram hina fullorðnu og að þau skuli líka njóta réttinda barnasáttmálans án tillits til kynþáttar, litarháttar, kynferðis, tungu, trúar, stjórnmálaskoðana, ætternis, fötlunar, félagslegrar stöðu eða annarra aðstæðna þeirra eða stöðu og athafna foreldra þeirra. Svona óafturkræf inngrip geta tæplega talist uppfylla það sem hér stendur. Birgir segir líka, svo ég leyfi mér að halda áfram að vitna í hann:

„Margar tilvitnanir má finna í Biblíunni er varða umskurn. Þær eiga það sameiginlegt að snúast um lögmálið annars vegar og fagnaðarerindið hins vegar. Jesús fæddist inn í samfélag lögmáls, þar sem t.d. lækning á hvíldardegi var talin brot á lögmáli Guðs. Jesús breytti þessum lögmálsskilningi og afstöðu til einstaklings og þjóðfélags þannig, að mestu skipti samúð, mannskilningur, tillitssemi, miskunnsemi, kærleikur, — ekki umskurn holdsins heldur umskurn hjartans. Við eigum orð yfir slíka breytingu: Fagnaðarerindi. Í því merkilega orði felst m.a. orðið frelsi.“

Mér fannst þetta afar áhugaverð grein og styður kannski við mín sjónarmið, passar við þau. Síðan hefur maður líka verið að lesa sér til. Ég hef talað fyrir réttindum barna, um það að við aukum hlut þeirra í ákvarðanatöku. Það erum alltaf við fullorðna fólkið sem tökum ákvarðanir fyrir börn. Við þurfum að gera það á einhverjum tilteknum tímum þar til þau hafa vit til en þá gleymum við líka stundum að taka þau með í ráðgjöfina. Það á við um okkur hér á Alþingi.

Mig langar líka að vitna aðeins í grein sem Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, doktorsnemi í mannréttindum við Háskólann í Strassborg, skrifaði þar sem hún rekur lögfræðilegt sjónarhorn út frá mannréttindasáttmálanum. Hún telur að frá lögfræðilegu sjónarhorni stríði bann við umskurði barna ekki gegn trúfrelsi foreldranna, fyrst og fremst þar sem heimilt er að takmarka trúfrelsi einstaklinga vegna réttinda og frelsis annarra. Það kemur fram í 1. mgr. 9. gr. mannréttindasáttmálans þar sem segir að sérhver maður eigi rétt á að vera frjáls hugsana sinna, samvisku og trúar. Þar felst frelsi manna til að breyta um trú eða sannfæringu svo og til að rækja trú sína eða sannfæringu svo sem með guðþjónustu, boðun, breytni og helgihaldi.

Það er líka vert að rifja upp að árið 1981 samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna yfirlýsingu um útrýmingu alls umburðarleysis vegna trúar þar sem fjallað er sérstaklega um rétt forráðamanna barns til að skipuleggja líf barnsins í samræmi við eigin trú og sannfæringu um siðferðislega kenningu. Kveðið er á um rétt barnsins til fræðslu í samræmi við óskir foreldra sinna en þó tekið fram að börn skuli ekki þvinguð til að þiggja slíka fræðslu gegn vilja sínum og að grundvallarreglan um það sem barninu er fyrir bestu höfð að leiðarljósi. Í lokamálsgrein ákvæðisins er tekið sérstaklega fram að iðkun trúar þeirrar sem barnið er alið upp í megi ekki valda skaða á líkamlegu eða andlegu heilbrigði barnsins eða hamla fullum þroska þess. Er þar aftur vísað til þess að slíkar takmarkanir skuli vera samkvæmt lögum og einungis ef nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi.

Í þessari umræðu um umskurð drengja kemur líka til réttur barna til friðhelgis einkalífs samkvæmt 8. gr. mannréttindasáttmálans. Þar er undir ákvæði sem t.d. varðar læknismeðferðir eða rannsóknir sem eru framkvæmdar án samþykkis viðkomandi. Umskurður mjög ungra drengja kemur enn fremur í veg fyrir að þeir fái að njóta réttar síns samkvæmt 9. gr. um trúfrelsi, 12. gr. barnasáttmálans og svo framvegis. Það eru margar greinar sem við höfum undirgengist sem standa algerlega með þessu frumvarpi. Hins vegar má svo velta fyrir sér, eins og hv. framsögumaður velti upp og nefndin tekur til umfjöllunar, refsirammanum, hvort hann sé of þungur. Ég hef ekki trú á öðru en að í þeim umsögnum sem berast um málið og varða eitthvað annað en trúmál, ef fólk horfir fram hjá því, þá fáum við einhverjar nálganir í því, hvort fólk telur þetta of mikið eða hvað.

Þetta mál hefur vakið rosalega miklu athygli. Það er að verða vitundarvakning í kringum allt það sem þetta mál snýr að, um það sem gert hefur verið í aldir og þarf ekki endilega að halda áfram að gera, alls ekki. Við eigum að breyta í átt til hins betra ef við fáum upplýsingar um að þessi aðgerð sé ekki vörn við því sem talið var og iðkað er enn þá í sumum löndum þar sem fólki er beinlínis sagt að þetta sé vörn gegn HIV og þess vegna eru þessar aðgerðir framkvæmdar. Við vitum betur. Það er kannski fræðslan sem þarf að eiga sér stað. #metoo-byltingin tók of langan tíma. Það tók of langan tíma að allt þetta kæmi upp á yfirborðið. Það er gjarnan þannig þegar kemur að málefnum sem snerta trúarbrögð heimsins að margt hefur fengið að grassera of lengi án þess að vera endilega fólki almennt til heilla.

Ég vona að þetta frumvarp fái málefnalega og góða umræðu í nefndinni. Ég er mikið búin að velta fyrir mér hvort málið þurfi að þroskast eða ekki og hef sveiflast fram og til baka. Ég held að umsagnir verði fljótar að berast því að þetta er búið að vera svo lengi í umræðunni, meira að segja áður en mælt var fyrir málinu. Ég vona að við náum að afgreiða það með skynsamlegum hætti frá þinginu.