148. löggjafarþing — 32. fundur,  1. mars 2018.

almenn hegningarlög.

114. mál
[15:47]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek undir það og ég dáist að því að hv. flutningsmaður sé opin fyrir því að frumvarpið kunni að taka breytingum, að það þurfi að fara í þá þinglegu meðferð sem fram undan er. Ég hef líka skilning á þeim sem hafa komið hingað upp og bent á þetta varðandi refsirammann, hvort þetta sé rétta staðsetningin. En ég tek líka undir það sem ég hef heyrt hér í umræðunni — ég veit svo sem ekki hvar annars staðar þetta ætti að vera — um jafnréttismál, um jafnrétti kynjanna; þegar við erum á einum stað að banna umskurð á stúlkubörnum, hvort drengir eigi þá að vera undanskildir. Ég tek undir það. Mér finnst mörg sterk rök hníga í þá átt að rétt sé að hafa þetta með þeim hætti.