148. löggjafarþing — 32. fundur,  1. mars 2018.

almenn hegningarlög.

114. mál
[16:14]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þetta eru mjög áhugaverðar spurningar sem þingmaðurinn veltir upp. Ég segi það sama og hv. þingmaður, mér lögfróðari menn verða að segja til um hvort okkur væri stætt á að gera greinarmun á því. En það hlýtur að felast í mati á alvarleika og afleiðingum verknaðarins en ekki mismunun á grundvelli kyns. Ég horfi ekki á það þannig heldur út frá alvarleika og afleiðingum. Það var það sem ég var að reyna að nálgast í ræðu minni, að hugsanlega væri þar munur á, ekki bara út frá siðum, venjum eða trúarbrögðum heldur líka afleiðingum.

Það sem er áhugaverðast í þessari umræðu er einmitt að fjarlægja alla umræðu um trú eða siði og venjur og nálgast umræðuna út frá mannréttindavinklinum. Það fannst mér einfaldast þegar ég fór að hugsa um þetta mál út frá öllum hinum mismunandi víddum sem vissulega er hægt að skoða það út frá; þeir ólíku vinklar gera málið vissulega áhugavert en á endanum hlytum við að nema staðar við hagsmuni barnsins og réttindi. Þar hljótum við að draga línuna. Við erum að verja réttindi barnsins. Svo er það önnur spurning, á hvaða tímapunkti við erum tilbúin til að segja: Hér er barnið orðið nægjanlega þroskað og stálpað til að taka ákvörðun um hvort það vilji fara í slíka aðgerð eða ekki, hverjar sem rætur þess eru.