148. löggjafarþing — 32. fundur,  1. mars 2018.

almenn hegningarlög.

114. mál
[16:50]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum svarið. Ég get alveg tekið undir það, ég get ekki tekið það gilt að þetta sé gert bara af trúarsannfæringu. Það sannfærir mig ekki. Ég er alveg sammála þingmanninum í því. En svo á móti hefur maður heyrt að ungt fólk í trúarsamfélögum sem stundar þennan umskurð sé farið að hugsa: Erum við að gera rétt? Er þetta nauðsynlegt? Þannig að það er farið að malla í þessum samfélögum líka, hvort það sé raunverulega rétt að standa í þeim iðkunum sem umskurður er.

Þess vegna spyr ég mig og þingmanninn líka: Þarf þetta ekki lengri tíma? Þarf málið ekki að þroskast svolítið lengur? Þurfum við ekki að taka meiri umræðu, velta þessu betur fyrir okkur, líka í ljósi þess eins og ég kom inn á áðan — er ekki viss um hvort ég hafi fengið svar frá þingmanninum um það — ef þetta frumvarp fer í gegn, hvort farið yrði í einhvers konar bílskúrsaðgerðir eins og ég nefndi. Óttast þingmaðurinn það ekki ef frumvarpið verður samþykkt?