almenn hegningarlög.
Forseti. Varðandi það að gefa þessu tíma: Afstaða mín veltur á því hvort þetta varði réttindi barnsins sem eru varin nú þegar í lögum okkar og reglum. Ef það er varið í okkar lögum og reglum, sem mér sýnist, og umboðsmaður barna hefur sagt, umboðsmaður barna á Norðurlöndunum, lít ég á það sem lögbundna skyldu mína að uppfylla þau réttindi barnsins. Þannig horfi ég á það. Ég get ekki séð að ég geti litið fram hjá því.
Ef það er eitthvað óljóst er enn umræða í gangi og þá þykir mér líklegt að þetta gæti tekið lengri tíma til að fólk geti myndað sér afstöðu og þá ég líka. En þær upplýsingar sem ég hef í dag frá umboðsmanni barna segja mér að þetta varði réttindi barnsins sem eru lögbundin á Íslandi, réttindi barnsins hjá Sameinuðu þjóðunum sem eru lögfest á Íslandi og ég verð þar af leiðandi að fylgja þeim.
Hver var aftur síðari spurningin? Ég man það ekki. (Gripið fram í.) Já, einmitt, bílskúrsaðgerðirnar. Við vitum að slíkt gæti alveg gerst. En þá þarf að hafa sex ára fangelsisrefsingu við því. Það er ein af ástæðunum fyrir því að ég sé það sem kost. En það getur verið galli líka. Þýðir að lögreglan hefur miklu víðtækari eftirlits- og rannsóknarheimildir. Þegar verið er að framfylgja einhverju sem við teljum, metum og trúum að varði grundvallarréttindi barnsins og setjum það þá í forgang og bindum þannig í lög, þá mun það á endanum verða upplýst. Það eru alla vega, skulum við segja, miklar líkur á því að ef menn ætla að taka þátt í íslensku samfélagi, með sundi og ég veit ekki hvað og hvað, myndi það á endanum koma fram.
En ég skil alveg óttann við þetta sjónarmið. Þetta er sjónarmið sem við verðum að sjálfsögðu að taka til skoðunar. Svo er náttúrlega hitt, eins og með Votta Jehóva. Þeir sem þiggja blóðgjöf þar, veit ekki hvort það er algilt á Íslandi en það er sums staðar í heiminum og dómsmál hafa fallið, eru útskúfaðir úr samfélagi sínu vegna þess að fyrir þeim er það ófrávíkjanleg krafa. En dómar hafa fallið um að það eigi samt að gefa barni blóð.