heilbrigðisþjónusta á landsbyggðinni.
Herra forseti. Við ræðum að sönnu býsna mikilvægt mál hér. Heilbrigðisþjónusta á landsbyggðinni er sannarlega einn af þeim lykilþáttum sem ráða búsetu og geta haft áhrif á hvar menn setja sig niður. Menntun heimilislækna, sem eru skulum við segja að minnsta kosti annar ef ekki helsti burðarásinn í þjónustunni víða um land, er algert grundvallaratriði. Ég vil nota tækifærið nú til að hvetja hæstv. ráðherra til að horfa sérstaklega til þess þáttar og reyna strax á þessu ári eða í komandi fjárlögum að horfa til þess að bæta þar í þannig að við horfum fram á við til að leysa málið á kannski næstu fimm til tíu árum. Það tekur fimm til tíu ár að „framleiða“ einn heimilislækni eftir að hann hefur lokið grunnnámi. Það er gríðarlega mikilvægt að ráðuneytið taki hraustlega á í þeim efnum til að tryggja að við fáum þessa þjónustuþætti í gott horf um allt land.