stuðningur við Samtök umgengnisforeldra.
Virðulegur forseti. Ég held að það sé jákvætt að við tökum umræðu um þessa safnliðastyrki. Ég vil segja hvernig ég nálgaðist þetta mál þegar ég kom inn í ráðuneytið. Í fyrsta lagi var búið að senda út auglýsingu og menn voru búnir að senda inn umsóknirnar. Þegar var starfandi undirhópur í ráðuneytinu, hópur starfsmanna sem var að fara yfir umsóknirnar út frá þeim atriðum sem sett voru fram í auglýsingunum á sínum tíma. Lögð var áhersla á að verkefni væru tímabundin, til ákveðinna afmarkaðra verkefna o.s.frv. Einnig var lögð áhersla á að verkefnin væru ekki þegar með samning við ríkið með einhverjum hætti, hvort sem er við ríkið eða undirstofnanir. Þegar farið var yfir þessar styrkumsóknir var tillaga lögð fram fyrir ráðherra um að ákveðin verkefni yrðu styrkt og önnur ekki eins og gengur. Þetta verkefni var eitt þeirra sem ekki var þar inni, en ég held að full ástæða sé til þess að hafa það þar. Ég hef boðað það að full ástæða sé til að velta skilyrðum til umsókna í safnliðina fyrir sér á hverju einasta ári, hvað við eigum að leggja þar til grundvallar og með hvaða hætti
Ég er ekki með listann yfir þau 35 félagasamtök sem fengu styrk með mér, en ég veit ekki betur en að á vefsíðu velferðarráðuneytisins hafi það komið fram, þegar styrkir voru veittir, hvaða samtök fengu styrki og hvaða upphæðir. Það var fjöldinn allur af samtökum. Það voru ADHD-samtökin, það var Barnaheill, samtök eldri borgara og fleiri samtök. Ég held að þetta liggi allt saman frammi á vefsíðu velferðarráðuneytisins þar sem það er sundurliðað. Stóra málið í mínum huga er það, sem ég kom inn á hér áðan, að mikil ásókn virðist vera í þessa liði af hálfu þriðja geirans. Ég held að full ástæða sé til að ræða, hvort sem það er framkvæmdarvaldið eða löggjafarvaldið, hvort taka eigi umræðu um það hvort (Forseti hringir.) breyta þurfi þessari umgjörð, hvort meira fjármagn þurfi inn í hana. Ég tel að svo sé og ég fagna þessari umræðu hvenær sem er.