minnkun plastpokanotkunar.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur fyrir fyrirspurnina. Ég tel mjög mikilvægt að ræða plastmengun og aðgerðir gegn henni hér á þinginu og fagna þessari umræðu.
Ég ætla að fara í gegnum stöðu þeirra verkefna sem skilgreind eru í aðgerðaáætlun ráðuneytisins um að draga úr notkun plastpoka á árunum 2016–2018. Þar er helst að nefna að í fyrsta lagi er búið að samþykkja lagafrumvarp um breytingu á lögum um úrvinnslugjald þar sem skipt er upp tollflokkum svo hægt sé að taka saman tölulegar upplýsingar um notkun einnota burðarplastpoka hér á landi.
Á árinu 2017 voru flutt inn 156 tonn af innkaupapokum og skráð á þennan sérstaka tollflokk. Magntölur fyrir innlenda framleiðslu á innkaupapokum úr plasti eru ekki fáanlegar en mér skilst að frekar lítið sé framleitt af plastpokum á Íslandi, að minnsta kosti á síðasta ári. Það skiptir vissulega máli að fá þessar tölfræðilegu upplýsingar til að hægt sé að byggja frekari vinnu á þeim.
Í öðru lagi var samningur Samtaka verslunar og þjónustu og ráðuneytisins um að draga úr notkun plastpoka undirritaður í september 2016. Með bréfi Umhverfisstofnunar og Samtaka verslunar og þjónustu 13. desember í fyrra, 2017, mæla aðilarnir með því að samningnum verði rift. Aðgerðaáætlunin gerði ráð fyrir að Samtök verslunar og þjónustu, Umhverfisstofnun og verslunin, ynnu í nánu samstarfi að því verkefni og að fjármagn til þess kæmi þá fyrir sölu plastpoka. Fram kemur í bréfinu að samvinnan hafi ekki gengið eins og gert var ráð fyrir, án þess að það sé skýrt frekar. Á þessu rúma ári hafi þó ýmislegt verið gert og margar verslanir tekið verkefnið upp á sína arma, sem skiptir auðvitað miklu máli.
Í þriðja lagi, ef við förum yfir hver afrakstur þessa samnings varð meðan aðilar unnu saman að þessu máli, hefur Umhverfisstofnun kynnt verkefnið, aflað upplýsinga um mismunandi gerðir poka og útbúið upplýsinga- og fræðsluefni. Stofnunin hefur á samfélagsmiðlum hvatt til þess að dregið sé úr notkun einnota plasts, tekið þátt í Hátíð hafsins, ráðstefnu og sýningu haustið 2017 um úrgangsforvarnir og verkefninu Plastlausum september, sem ég geri ráð fyrir að hv. þingmenn muni margir hverjir eftir og skipulagt var af frjálsum félagasamtökum.
Pokasjóður setti af stað kynningarátak síðastliðið vor sem bar heitið Tökum upp fjölnota. Samtök verslunar og þjónustu hafa þrýst á verslanir um að taka þátt í því verkefni.
Í fjórða lagi stóð til að Umhverfisstofnun setti fram tilmæli til verslana um lágmarksupphæð gjalds á burðarpoka. Það er til skoðunar að gjaldið eigi ekki að einskorðast við einnota burðarplastpoka heldur leggjast á alla poka, sama úr hvaða efni þeir eru. Tilgangur þess er að draga almennt úr sóun og einnota notkun í samræmi við úrgangsforvarnastefnu ráðuneytisins, Saman gegn sóun. Það hefur hins vegar ekki komist í gagnið þar sem samstarf við verslanir um það atriði náðist ekki. Þess vegna var í raun ekki grundvöllur fyrir því.
Í fimmta lagi voru verslanir hvattar til að leggja gjald á alla burðarpoka og hafa tiltækar aðrar lausnir en notkun einnota burðarpoka til að koma vörunni heim. Það hefur verið gert og hefur verslunin hafið þessar aðgerðir. Það átak var kynnt vorið 2017.
Í sjötta lagi átti verkefni um samanburð á umhverfisáhrifum plastpoka, margnota poka og lífbrjótanlegra poka að fara í gang á vegum Umhverfisstofnunar, en ekki tókst að fá fjármagn til þess verkefnis.
Í sjöunda lagi var stefnt að því að Samband íslenskra sveitarfélaga upplýsti Umhverfisstofnun um hvaða skref hefðu verið tekin til að tryggja flokkun úrgangs, tryggja að íbúar hefðu aðgang að þjónustu á þessu sviði sem og að upplýsingar um lausnir við meðhöndlun úrgangs fælu ekki í sér notkun plastpoka. Þessar upplýsingar hafa ekki enn þá borist frá sambandinu, en aðgerðaáætlun er í sjálfu sér ekki lokið, hún tekur líka til ársins í ár.
Þá er yfirferð minni um framfylgt áætlunarinnar sjálfrar lokið. Margt hefur tekist ágætlega. En það eru hins vegar vonbrigði að aðilar hafi ákveðið að rifta þessum samningi því að ekki voru öll verkefni unnin. Ég er bara hreinskilinn varðandi það. Verkefnið um plastmengun heldur samt áfram. Ég mun koma að svari við seinni spurningunni hér á eftir.