minnkun plastpokanotkunar.
Virðulegur forseti. Ég vil taka það mjög skýrt fram að ég legg áherslu á að plastmengun er stórt og alvarlegt vandamál sem við Íslendingar verðum að taka meira til okkar. Ég tek undir með öllum þingmönnum sem hér hafa talað um það mál. Ég vil hins vegar nálgast þetta mál á sem heildstæðastan hátt og ég tek undir með hv. þm. Oddnýju Harðardóttur að við höfum kannski verið að horfa of mikið á einhver ákveðin atriði.
Ég held að við eigum að nálgast verkefnið út frá magni og eðli neyslunnar. Þar eru plastpokarnir ekki endilega stærsta verkefnið heldur umbúðaplast almennt. Þeir eru hins vegar mjög sýnilegir og snerta daglegt líf okkar. Þess vegna skiptir máli að ráðast í sýnilegar aðgerðir þegar kemur að því. Ég hef sett í gang vinnu í ráðuneytinu við að taka saman þekkingu hér heima og erlendis sem snýr að rannsóknum, tölfræði og vöktun á plasti og plastmengun.
Hvaða stjórnvaldsaðgerða er hægt að grípa til, hvort sem það er bann eða hvatar eða latar, einhvers konar skattur eða gjaldtaka sem gefist hefur vel í nokkrum af okkar nágrannalöndum eins og í Danmörku og Írlandi?
Síðan er kynning og fræðsla, þó svo að ég taki undir að við þurfum að ganga lengra en það, er það líka mikilvægur þáttur af þessu. Síðan þarf að hreinsa plast úr umhverfi okkar sem er sameiginlegt verkefni okkar allra.
Ég vil byggja á samantekt á þessu. Ég veit að fólk er orðið þreytt á samantektum, en það er nauðsynlegt að nálgast þetta heildstætt, ekki bara út frá einni gerð af plasti heldur út frá plasti almennt og byggja á því að leggja fram heildstæða aðgerðaáætlun sem tekur til stjórnvaldsaðgerða, rannsókna og vöktunar, og einnig til kynningar og fræðslu og hreinsunar á plasti.
Ég á von á því að það birtist á árinu. Ég finn að í þessum sal eru hlýir straumar sem streyma varðandi þessa vinnu. Ég hlakka til að eiga samstarf við ykkur öll um það í framtíðinni.