148. löggjafarþing — 36. fundur,  7. mars 2018.

skýrsla Ríkisendurskoðunar um Sjúkratryggingar Íslands sem kaupanda heilbrigðisþjónustu, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherrra.

[17:09]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Hér ræðum við skýrslu Ríkisendurskoðunar um Sjúkratryggingar Íslands sem kaupanda heilbrigðisþjónustu. Í skýrslunni kemur fram að gera þurfi ráðstafanir til að bæta samninga Sjúkratrygginga Íslands um heilbrigðisþjónustu. Að mati Ríkisendurskoðunar verður ekki séð að þessir samningar hafi almennt tryggt markviss kaup ríkisins á heilbrigðisþjónustu. Einnig megi efast um að samningarnir séu í öllum tilvikum hagkvæmir eða stuðli að aukinni skilvirkni heilbrigðiskerfisins í heild. Í skýrslunni er því beint til velferðarráðuneytisins að það eigi að marka stefnu um heilbrigðisþjónustu og sjá til þess að ríkisstofnanir heilbrigðiskerfisins vinni á samhæfðan hátt að markmiðum hennar.

Hæstv. heilbrigðisráðherra kom inn á þetta áðan í ræðu sinni og er greinilega meðvituð um að stefnuleysi er mjög dýrt fyrir þjóðfélagið. Í slíkri stefnumörkun þarf að vera skýrt hvaða þjónustu heilbrigðisstofnanir eiga að veita og hvaða þjónustu eigi að kaupa af öðrum aðilum. Það stefnuleysi sem einkennir málaflokkinn hefur leitt til þess að áherslur fjárlaga hverju sinni, tímabundin átaksverkefni og úrlausn tilfallandi vandamála hefur mótað ákvarðanir um samninga um heilbrigðisþjónustu og þar með þróun kerfisins í heild.

Einnig er því beint til ráðuneytisins að tryggja eðlilega verkaskiptingu við gerð samninga. Dæmi eru um að velferðarráðuneytið geri samninga án aðkomu Sjúkratrygginga eða ákveði einhliða forsendur þeirra. Að mati Ríkisendurskoðunar er þetta óeðlilegt. Um leið þarf að efla nauðsynlega fagþekkingu innan Sjúkratrygginga og getu þeirra til annast greiningar, vinna að gerð samninga og hafa eftirlit með framkvæmd þeirra. Dæmi eru um að samningar Sjúkratrygginga hafi ekki stuðst við fullnægjandi greiningar á þörfum, kostnaði og ábata. Þá hafa verið gerðir samningar sem kveða ekki nægilega skýrt á um skilgreint magn, gæði eða jafnt aðgengi landsmanna. Að mati Ríkisendurskoðunar má draga í efa að víðtækir rammasamningar stuðli að markvissum og hagkvæmum kaupum á heilbrigðisþjónustu. Því er hvatt til að meta kosti þess að semja um þjónustu einstakra sérgreina.

Þá telur Ríkisendurskoðun brýnt að nýr samningur Sjúkratrygginga Íslands við Landspítala um framleiðslutengda fjármögnun verði þróaðar áfram í því skyni að hann verði nýttur til að hámarka skilvirkni og hagkvæmni spítalans.

Virðulegi forseti. Fyrir stuttu átti ég samtal við hæstv. heilbrigðisráðherra vegna málsins um heilbrigðisstefnu í fyrirspurnatíma hér á Alþingi. Þar ræddi ég m.a. um hve mikilvægt væri að hefja stefnumótun í svo mikilvægum málaflokki sem heilbrigðismálin eru. Það er mikilvægt bæði fyrir lýðheilsu og bætta heilbrigðisþjónustu og er forsenda fyrir góðri fjármálaáætlun sem við viljum að haldi. Eins vil ég taka undir orð heilbrigðisráðherra þegar hún talaði um að Alþingi og nefndir þingsins þyrftu að fylgja (Forseti hringir.) þessari skýrslu eftir, kalla jafnvel inn gesti til að fylgja henni eftir.