148. löggjafarþing — 36. fundur,  7. mars 2018.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 129/2017 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn.

334. mál
[18:41]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 129/2017 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun og fella inn í samninginn framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar um hönnun á sameiginlega kennimerkinu til að sanngreina aðila sem bjóða almenningi lyf í fjarsölu og um tækni- og raftæknilegar kröfur og dulkóðunarkröfur varðandi sannprófun á ósvikni þess.

Með reglugerðinni er komið á sameiginlegu kennimerki til staðfestingar á að aðilar sem bjóða lyf í fjarsölu hafi til þess heimild og séu vottaðir sem slíkir af þar til bærum yfirvöldum. Ef vefsíða er með kennimerkið eiga neytendur að geta treyst því að þeir sem að henni standa starfi eftir lögum. Með þessu er ætlunin að samræma löggjöf ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu hvað þetta varðar og sporna við fölsuðum lyfjum á markaði. Í reglugerðinni kemur fram hvernig merkið skuli úr garði gert og öryggi þess tryggt. Nákvæma útlistun á því er að finna í viðauka við reglugerðina.

Þar sem innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar var umrædd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar tekin með stjórnskipulegum fyrirvara af hálfu Íslands. Samkvæmt lögum um þingsköp Alþingis ber að aflétta slíkum fyrirvara með þingsályktunartillögu. Því er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeirri breytingu á EES-samningnum sem í ákvörðuninni felst svo að aflétta megi hinum stjórnskipulega fyrirvara.

Ég legg til, virðulegi forseti, að að lokinni þessari umræðu verði tillögu þessari vísað til hv. utanríkismálanefndar.