148. löggjafarþing — 36. fundur,  7. mars 2018.

brottfall laga um stofnun hlutafélags um Hitaveitu Suðurnesja.

138. mál
[18:52]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Smári McCarthy) (P):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um brottfall laga um stofnun hlutafélags um Hitaveitu Suðurnesja, nr. 10/2001, með síðari breytingum. Nefndin hefur fjallað um málið sem lýtur að því að fella brott lög um stofnun hlutafélags um Hitaveitu Suðurnesja enda er Hitaveita Suðurnesja ekki lengur starfandi.

Fyrirtækið var lagt niður árið 2008 og við hlutverki þess tóku tvö sjálfstæð fyrirtæki, HS Orka hf. og HS Veitur hf., en starfsemi þeirra fellur undir önnur lög á þessu sviði og er ekki talin þörf á sérákvæðum eða undanþágum frá þeim.

Í frumvarpinu felst ákveðin lagahreinsun og leggur nefndin til að það verði samþykkt óbreytt.

Undir þetta rita Lilja Rafney Magnúsdóttir formaður, Smári McCarthy, framsögumaður nefndarinnar, Inga Sæland, Halla Signý Kristjánsdóttir, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Ásmundur Friðriksson, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Njáll Trausti Friðbertsson og Sigurður Páll Jónsson, allt hv. þingmenn. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er hún samþykk áliti þessu.

Það er ekki miklu meira um þetta að segja, þetta eru í raun bara úrelt lög og lítið í þeim; ekkert í þeim sem hefur neina merkingu í dag. Það er fínt að losna við þau úr lagasafninu. Sem stjórnarandstöðuþingmaður eða minnihlutaþingmaður velti ég því svolítið fyrir mér af hverju þetta er ofarlega á baugi hjá ríkisstjórninni. Það breytir því ekki að það er alltaf fínt að taka til. Þetta er eins og það er og ekki neitt meira um það að segja.