148. löggjafarþing — 36. fundur,  7. mars 2018.

stofnefnahagsreikningar.

65. mál
[19:25]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf):

Frú forseti. Þar sem orðið svona áliðið mun ég stytta mál mitt eftir föngum. Í þeirri tillögu sem hér liggur fyrir til þingsályktunar er kveðið á um gerð stofnefnahagsreikninga fyrir ríkissjóð í heild og einstaka ríkisaðila í A-hluta. Þar kemur fram að breytingar á reikningsskilum ríkisins komi til framkvæmda á næstu árum og byggist á sérstakri innleiðingaráætlun sem fjármála- og efnahagsráðherra beri ábyrgð á að unnin verði. Tekið er fram að hún skuli lögð fyrir og samþykkt af reikningsskilaráði ríkisins.

Þegar maður grennslast fyrir um það hvernig það ágæta og mikilvæga ráð er samansett koma fyrir augu nöfn fimm aðila; tveir eru úr fjármála- og efnahagsráðuneytinu, einn er fjársýslustjóri, einn er hagstofustjóri og síðan er einn hjá einkafyrirtæki utan við kerfið. Það má því gera ráð fyrir því að sömu aðilarnir komi til með að fjalla um þetta og samþykkja í reikningsskilaráði, verandi þar með reikningsskilaráðshattana, og hafa verið að glíma við þessi viðfangsefni við undirbúning þessa máls. Þetta vekur eilitla athygli.

Í ríkisreikningi fyrir árið 2016 er gerð grein fyrir uppgjöri og afkomu ríkissjóðs 2016, það er nýjasti reikningurinn sem liggur fyrir. Þar kemur fram að ríkisreikningur sé settur fram í samræmi við lög um fjárreiður ríkisins og hann er settur fram fyrir árið 2016 í tveimur hlutum. Þar er sem sagt ríkisreikningur 2016, heildaryfirlit þar sem sýnd er afkoma allra ríkisaðila eins og segir. Síðan segir að þar komi fram vísir að samstæðureikningi fyrir A-hluta ríkissjóðs í heild og samanburður á útkomu við fjárheimildir á einstökum liðum.

Það vekur athygli að í þessum ríkisreikningi fyrir árið 2016, sem er nýjasti reikningur sem fyrir liggur, er talað um að þarna komi fram vísir að samstæðureikningi. Nú er ekkert í lögum sem heitir „vísir að samstæðureikningi“, hins vegar er til samstæðureikningur. Þetta er sem sagt ekki samstæðuuppgjör sem þarna er verið að tala um heldur vísir að samstæðureikningi. Samstæðureikningur lýtur reglum sem um hann gilda. Hér er verið að setja fram, að því er virðist, einhvers konar tilkynningu um það, eftir því sem best verður séð, að ekki hafi verið farið að reglum sem um þessi mál gilda í lögum varðandi framsetningu þessa samstæðureiknings heldur er þarna talað um vísi. Við vitum ekki hvort þessi vísir að samstæðureikningi er nokkurn veginn alveg samstæðureikningur eða hvort verulega skortir á það.

Það vekur þá spurningu af hverju þetta er sett fram með þessum hætti og sömuleiðis hvenær fyrirhugað sé að setja fram samstæðureikning sem fullnægi ákvæðum bókhaldslaga. Í annan stað segir að innbyrðis viðskiptum milli sviða og deilda innan stofnunar sé eytt út en ekki á milli aðila innan A-hluta. Hvað merkir þetta? Ber að skilja þetta svo, frú forseti, að tiltekin viðskipti í ríkisreikningi séu tvítalin? Þetta vekur upp þá spurningu af hverju þetta er svona og af hverju þessum viðskiptum eru ekki ósköp einfaldlega eytt út.

Í greinargerð með þingsályktunartillögunni kemur fram að samkvæmt lögum um opinber fjármál skuli frá og með árinu 2017 fara að ákvæðum laganna hvað varðar uppgjör ríkisreiknings og skal ríkisreikningur vegna ársins 2017 því í fyrsta sinn gerður í samræmi við þessar breyttu reikningsskilareglur og allt það. Það er sem sagt gert ráð fyrir því að þarna fari fram innleiðing sem verði gerð á þriggja ára tímabili og hún skal byggð á sérstakri innleiðingaráætlun sem fjármála- og efnahagsráðherra ber ábyrgð á að unnin verði, eins og það heitir, og skal hún lögð fyrir og samþykkt af reikningsskilaráði ríkisins, eins og áður getur. Þegar við erum að fjalla um þessa tillögu til þingsályktunar, um gerð stofnefnahagsreiknings fyrir ríkissjóð í heild og einstaka ríkisaðila í A-hluta, þá vaknar þessi spurning: Af hverju liggur þessi innleiðingaráætlun ósköp einfaldlega ekki fyrir? Sömuleiðis er spurningin: Hvernig á að færa eldri eignir og afskriftir þeirra í bókhaldi ríkisins? Það sýnist svo að einhver mismunur sé á milli annars vegar Ríkisendurskoðunar og hins vegar fjármála- og efnahagsráðuneytis hvernig haga beri þessum færslum. Það er aðeins til umhugsunar, frú forseti, að vera í þeirri stöðu að samþykkja þingsályktunartillögu um stofnefnahagsreikninga þegar þessi atriði hafa ekki verið frágengin. Það hefði hugsanlega verið eðlilegra að áhrif breyttra reikningsskilastaðla, sem eru mjög gerð að umtalsefni í þeim gögnum sem við höfum fyrir framan okkur, kæmu fram í greinargerð með tillögunni.