148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[12:00]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Við erum að ræða hér um frumvarp um breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu sem snýr að húsnæðislið vísitölu neysluverðs. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni framsöguna. Margt var athyglisvert. Fyrst vil ég segja um verðtrygginguna að ákall um afnám hennar þegar kemur að neytendalánum og húsnæðislánum hefur kannski ekki hljómað eins hátt undanfarandi vegna þess að staðreyndin er sú að við höfum búið við verðstöðugleika í fjögur ár.

Af því að það kom ekki skýrt fram í framsögu hv. þingmanns ætla ég bara að spyrja beint: Hvaða mælingu metur hv. þingmaður út frá þeim breytingum sem eru fyrirhugaðar að peningastefna Seðlabanka Íslands ætti að miða sig við?