148. löggjafarþing — 38. fundur,  8. mars 2018.

vextir og verðtrygging.

246. mál
[12:02]
Horfa

Flm. (Þorsteinn B Sæmundsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Það er rétt hjá honum að ekki hefur farið eins mikið fyrir umræðu um afnám verðtryggingar undanfarin misseri og áður en ég held að það sé ekki bara út af því að hér hefur verið stöðugleiki. Ég held að það sé líka vegna þess að þá leikendur og þær persónur sem börðust mest fyrir þessu á næstliðnu kjörtímabili hafi einfaldlega skort kjark til að fylgja þessu máli fram.

Eins og ég kom inn á í ræðu minni að nokkrum hluta er peningastefna Seðlabanka Íslands sjálfstætt vandamál. Fjölmargir málsmetandi hagfræðingar, eins og dr. Ólafur Margeirsson, hafa tekið undir það að bæði hafa verðbólguspár Seðlabankans sem hann byggir m.a. vaxtaákvarðanir sínar á verið víðs fjarri raunveruleikanum sl. fjögur ár og einnig að í sjálfu sér (Forseti hringir.) er það ekki útgangspunktur fyrir hagkerfið allt hvort vextir hér eru 4,5% stýrivextir eða 2,5% sem þeir gætu hæglega verið.